Morgunblaðið - 25.08.2005, Page 18
18 FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
SUÐURNES
Höfuðborgin | Nýr og endurbætt-
ur Ráðgjafi hefur verið tekinn í
notkun á vefsíðu Strætó bs. Ráð-
gjafinn er hjálparforrit sem veitir
nákvæmar upplýsingar um áfanga-
staði og ferðir strætó með það að
markmiði veita aukna þjónustu og
að koma notendum milli staða á
höfuðborgarsvæðinu á sem hag-
kvæmastan hátt.
Ráðgjafinn blasir við notendum
þegar slóðin að vefsíðu Strætó bs.
(www.bus.is eða www.strætó.is)
hefur verið slegin inn. Notandinn
skráir inn brottfarar- og áfanga-
stað í viðeigandi reiti, nákvæm
heimilisföng eða brottfarar- og
áfangastaði úr vallista. Þá er sleg-
inn inn ákjósanlegur komutími á
áfangastað og hvaða dag vikunnar
á að ferðast. Þegar smellt er á
hnappinn „Finna leiðir“ birtist
leitarniðurstaða með allt að fjórum
tillögum að ferðatilhögun. Besti
kosturinn er efst. Með hverri til-
lögu eru síðan krækjur þar sem
skoða má kort og sjá strætóleið-
irnar nánar.
Hver tillaga felur í sér heildar-
ferðatíma, þ.e. gönguvegalengd og
göngutíma að næstu biðstöð, núm-
er leiðar og komutíma, ferðatíma á
áfangastað eða skiptistöð, biðtíma
á skiptistöð og ferðatíma með
næstu leið og loks gönguvegalengd
og göngutíma að áfangastað. Hafa
verður í huga að göngutími er að-
eins til viðmiðunar en fjarlægðir
eru miðaðar við loftlínu með nálg-
un upp á 10 metra og aðstæður
geta verið mismunandi. Vænta má
smávægilegra breytinga og fín-
stillinga á Ráðgjafanum á grund-
velli reynslu.
Strætó bs. hvetur viðskiptavini
sína til að nota Ráðgjafann svo
nýja leiðakerfið nýtist þeim sem
best.
Hjálparforrit tekið í notkun á vefsvæði Strætó bs.
Ráðgjafinn leitar að
hagkvæmustu leiðinni
Reykjanesbær | Hópur fólks í Reykjanesbæ
hefur nú stofnað Samtök gegn ofbeldi í Reykja-
nesbæ (SGOR), en hlutverk samtakanna er að
vekja athygli á ofbeldi í Reykjanesbæ og fá fólk
til að hugsa sig tvisvar um áður en það beitir of-
beldi. Að sögn Önnu Albertsdóttur, starfs-
manns félagsmiðstöðvarinnar Fjörheima og
stofnanda samtakanna, berjast samtökin gegn
ofbeldi í allri sinni mynd hvort sem um er að
ræða líkamlegt, andlegt eða kynferðislegt of-
beldi. „Samtökin munu vekja athygli á ofbeldi í
samfélaginu og fá fólk til að opna augun fyrir
þessum veruleika,“ segir Anna. Samtökin
munu m.a. starfa með ýmiss konar uppákomum
og fyrirlestrum sem ætlað er að opna um-
ræðuna um ofbeldi. Anna hefur þegar fengið
Svövu Björnsdóttur frá samtökunum Blátt
áfram til að halda fyrirlestur bráðlega. „Við
höfum líka greiðan aðgang að aðstöðu til tón-
leikahalds og fyrirlestra, m.a. í 88 húsinu og
Svarta pakkhúsinu,“ segir Anna en hún segir
tónleika prýðilega leið til að vekja athygli á
málefninu. „Við viljum opna umræðuna um of-
beldi, allar útgáfur þess, gera grein fyrir afleið-
ingum, opna fólk gagnvart málefninu og ná
fram jákvæðu hugarfari í garð fórnarlamba.“
Svartir sauðir smita út frá sér
Samtökin munu vekja sérstaka athygli á
starfi sínu á Ljósanótt, en þá munu félagar í
þeim selja barmmerki til styrktar samtökunum
og afhenda fólki pésa með upplýsingum um
þau. Hingað til hafa samtökin verið á undirbún-
ingsstigi en aðalstofnfundur þeirra verður
haldinn í lok september.
„Ég veit ekki hvað veldur þessu ofbeldi,“
segir Anna. „Kannski myndast meiri spenna í
svona smáu samfélagi. Ef eitthvað gerist þá eru
allir svo fljótir að bregðast við. Ef fólk stendur í
einhverju rifrildi eru menn fljótari til varnar
hver öðrum. Annars veit ég ekki hvernig er
hægt að skýra þetta. Það er heldur ekki aðal-
atriðið, þetta gerist eflaust á miklu fleiri stöð-
um og það eru örfáir sem eru svörtu sauðirnir í
hópnum, en þeir smita út frá sér. Aðalatriðið er
að hvetja fólk til að hugsa sig tvisvar um og
leysa ágreining sinn með betri leiðum.“
Anna segir mikilvægt að byrja á því að fræða
unglingana, því forvarnir virki best ef snemma
er tekið á fólki. Enda verði ofbeldisfullir ung-
lingar að ofbeldisfullu fullorðnu fólki og mun
auðveldara sé að koma í veg fyrir þessa þróun
snemma en að kenna gömlum hundum að sitja.
Þá segir hún mikilvægt að fá íþróttalið bæj-
arins, nemendaráð skólanna, eigendur
skemmtistaða og fjölmiðla með í starfið, eigi ár-
angur að nást. „Þetta er málefni sem ekki er
hægt að vera á móti, það vita allir að það er þörf
á þessu,“ segir Anna, sem kveðst afar ánægð
með undirtektirnar.
Samtök gegn ofbeldi í Reykjanesbæ stofnuð
Fólk hugsi sig
tvisvar um
Morgunblaðið/Svavar
Gegn ofbeldi Anna Albertsdóttir fer fyrir hópi fólks sem berst gegn hvers kyns ofbeldi.
Hafnarfjörður | Vegfarendur sem
eiga leið um athafnasvæði við höfn-
ina í Hafnarfirði, þar sem gamla
bæjarútgerðin áður stóð, reka marg-
ir augun í undarlegan klett sem
stendur dálítið eins og óboðinn gest-
ur innan um rymjandi gröfur, lyft-
ara og jarðýtur. Kletturinn, sem
nefnist Fiskaklettur, er alls ekki
óþekktur meðal Hafnfirðinga, en
hann skipar mikilvægan sess í sögu
bæjarins frá upphafi byggðar.
Fiskaklettur er í raun ysti oddi
hraunsins í Hafnarfirði og lá hann
dálítið út í sjó. Nú stendur hann í
miðju landfyllingar sem bygging-
arnar á höfninni voru reistar á.
„Fiskaklettur var lengi eins konar
útvörður Hafnarfjarðar, á meðan
bærinn var lítill kaupmannsbær,“
segir Jónatan Garðarsson, dag-
skrárgerðarmaður og ferðamálaráð-
gjafi hjá Hafnarfjarðarbæ. „Það var
mjög aðdjúpt við klettinn og fiski-
göngur áttu það til að lóna við hann
og því var hann kjörinn veiðistaður.
Þaðan er nafnið dregið.“
Gamalt og merkilegt
kennileiti
Fiskaklettur er merktur inn í upp-
drátt sem gerður var eftir mæling-
um sjóliðsforingjans H.E. Minor frá
árunum 1776–78. Á uppdrættinum
eru merkt inn þau fáu hús sem stóðu
við Hafnarfjörð ásamt þeim kenni-
leitum sem markverðust þóttu.
Fiskaklettur er þar sýndur rétt
vestan við verslunarhúsin í Akur-
gerði.
Þegar stjórnvöld ákváðu að reisa
tvo vita í Hafnarfirði árið 1900 var
annar þeirra byggður hátt uppi á
hraunbrúninni, þar sem Vitastígur
er nú, en hinn vitinn settur niður
vestur með sjó. Fyrstu árin voru vit-
arnir reknir á kostnað landstjórn-
arinnar, en eftir að Hafnarfjörður
fékk kaupstaðarréttindi, 1. júní
1908, óskaði Stjórnarráð Íslands eft-
ir því að bærinn tæki við rekstri vit-
anna. 1. janúar 1911 tók bærinn al-
farið við rekstri vitanna.
Árið 1913 var fyrsta hafskipa-
bryggja landsins tekin í notkun í
Hafnarfirði, rétt innan við Fiska-
klett við Hellyershúsin, en þar höfðu
mikil bólvirki verið hlaðin upp og
steypt á klettabrúninni. Þá var Frí-
kirkjan risin og skyggði hún á ljós-
geisla vitans á hraunbrúninni. Þess
vegna var ákveðið að stækka hann
og færa hinn vitann innar í fjörðinn.
Var vitinn endurreistur á Fiska-
kletti, en þar stóð hann til ársins
1931 þegar hann var rifinn.
Verndaður „óvart“
Um 1960 var hafnarbakkinn í
norðurhöfninni gerður og stálþil
rekið niður á rúmlega 170 metra
kafla. Á næstu árum var haldið
áfram með landfyllingar í áttina að
Norðurgarði. Á þessum árum komst
efsti hluti Fiskakletts á þurrt land.
Þrátt fyrir margs konar fram-
kvæmdir, byggingu stórra vöru-
skemma og að gömlu fiskverkunar-
húsin væru rifin í áföngum var
Fiskakletti jafnan hlíft, enda talinn
náttúrlegur minnisvarði sem bæri að
vernda.
„Það má segja að Fiskaklettur
hafi verið friðaður óvart,“ segir Jón-
atan og bætir við að menn hafi ætíð
sýnt klettinum mikla nærgætni enda
mikil virðing borin fyrir honum.
„Þegar menn hafa verið að vinna hér
í einhverjum framkvæmdum hafa
þeir alltaf gætt mjög vel að því að
raska ekki klettinum. Þeir hafa
meira að segja raðað gámum í kring-
um klettinn til að vernda hann þegar
mikið er um að vera. En hann virðist
alltaf hafa verið verndaður hér fyrir
einhverja meðvitund Hafnfirðinga
sjálfra frekar en opinbera friðun.
Það var ekki fyrr en fyrir einhverj-
um árum sem hann fór inn á deili-
skipulag sem friðaður staður. Nú
hafa verktakarnir sem byggja hér
gert ráð fyrir honum í hönnuninni.“
Fegrunarnefnd Hfj. merkti klett-
inn 1981 og lét setja á hann kop-
arskjöld sem á stendur: „Þetta er
Fiskaklettur einn af framvörðum
hafnfirska hraunsins, sem mikil
fiskimið voru við hér fyrr á árum.“
Fiskaklettur í Hafnarfirði stendur traustur í hjarta framkvæmda á Norðurbakkanum
Einn af framvörðum hafnfirska hraunsins
Eftir Svavar Knút Kristinsson
svavar@mbl.is
Morgunblaðið/Jim Smart
Sögustaður Fiskaklettur var forðum góður veiðistaður og segir Jónatan hann upphaf ferils ófárra aflaskipstjóra.
Grafarvogur | Vegagerðin hefur nú
auglýst útboð Hallsvegar í Graf-
arvogshverfi, en hann mun tengja
Víkurveg og Fjallkonuveg. Gert er
ráð fyrir því að framkvæmdir verk-
taka geti hafist í næsta mánuði og
að Hallsvegurinn verði opnaður 1.
júní á næsta ári, að því er fram
kemur í Framkvæmdafréttum
Vegagerðarinnar. Vinnu við al-
mennan frágang svæðisins skal
vera lokið fyrir 1. ágúst 2006.
Talsverð átök stóðu um lagningu
Hallsvegar á síðasta ári, sem leiddu
m.a. til þess að akreinum á veginum
var fækkað úr tveimur í hvora átt í
eina. Hallsvegur verður tengdur
við Fjallkonuveg með hringtorgi og
við það verða undirgöng undir veg-
inn. Hallsvegur verður um 860
metrar á lengd með göngustíg
sunnan við veginn, að hluta til
handan hljóðmanar sem reisa á
samsíða Garðhúsum.
Framkvæmdir við
Hallsveg í næsta mánuði