Morgunblaðið - 25.08.2005, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2005 19
MINNSTAÐUR
Toshiba skólafartölvur
SKEIFUNNI 17 SÍMI: 550 4000 WWW.TAEKNIVAL.IS
FARTÖLVUR
Toshiba Qosmio
F10-136 1.7Ghz
Verð: 214.700 kr.
F
A
B
R
IK
A
N
Toshiba Satellite
M40-183
Verð: 139.700 kr.
Toshiba Satellite
M40X-105
Verð: 89.700 kr.
SAMSTARFSAÐILAR:
Penninn - Hallarmúla / Penninn - Akureyri - www.penninn.is / Tölvuþjónusta Vesturlands - Borgarnes - tvest@simnet.is
Netheimar - Ísafjörður - www.netheimar.com / Eyjatölvur - Vestmannaeyjum - www.eyjatolvur.com
Tölvuþjónusta Vals - Keflavík - tvals@mi.is / Tölvu- og tækjabúðin - Ólafsvík
Martölvan - Höfn í Hornafirði - www.martolvan.is
AUSTURLAND
Fjarðabyggð | Morgunblaðinu
áskotnaðist nýlega þessi mynd af
kvennaliði Fjarðabyggðar í fótbolta
og taldi sá er sendi þetta vera fal-
legasta fótboltaliðið á Íslandi og
vildi setja sem yfirskrift „Fegurð í
Fjarðabyggð.“ Fullvíst má einnig
telja að auk þess að vera mynd-
arlegar séu knattspyrnukonurnar
knáar vel á vellinum. Ljósmynd/Sturla Már Helgason
Fallegasta
fótboltalið
landsins
Vopnafjörður | Hluthafar í Mjólk-
ursamlagi Vopnfirðinga ákváðu sl.
mánudagskvöld að selja félagið til
Mjólkurbús Flóamanna.
Þórður Pálsson mjólkurbússtjóri
segir sölusamning hafa verið und-
irritaðan með fyrirvara um sam-
þykki stjórnanna og hluthafanna
10. ágúst sl. Salan gildir frá 1.
september nk. og er miðuð við nýtt
verðlagsár í mjólkinni. Þórður seg-
ir framleiðendur á svæðinu, 9 tals-
ins, ganga inn í MBF með ná-
kvæmlega sömu réttindi og þeir
sem þar eru fyrir. Starfsmenn
flytjist einnig yfir með öllum rétt-
indum óskertum.
Mjólkurkvóti samlagsins er nú
um 769–770 þúsund lítrar. Starfs-
menn eru fjórir, tveir mjólkurfræð-
ingar, 1 almennur starfsmaður og
bílstjóri sem sækir mjólk til bænda
og ekur neyslumjólk í búðir á
Vopnafjörð og Þórshöfn
„Bændur sem hafa framleitt
mjólk hér á svæðinu áttu hlutaféð
nánast allt saman og þar af leið-
andi var talsvert af hlutafé í eigu
bænda sem eru hættir, t.d. tveggja
í Þistilfirði og þriggja í Vopna-
firði,“ segir Þórður. „Salan kemur
fyrst og fremst til vegna þess að
mjólkursamlagið hefur alltaf þurft
rekstrarstyrk til að geta haldið
rekstrinum úti, þetta er það lítið
samlag. Rekstrarstyrkurinn, milli 8
og 10 milljónir, byggist á reglugerð
þar sem eru teknir um 6 aurar af
hverjum mjólkurlítra í landinu og
þeir aurar hafa verið notaðir til að
greiða rekstrarstyrki til minnstu
samlaganna, en mjólkursamlagið
hér er eiginlega það síðasta sem er
eftir af þeim. Það er talið mjög
varlegt að treysta á að þessari
reglugerð verði ekki breytt innan
skamms tíma og þá er ekki grund-
völlur til að reka samlagið. Bæði
bændur og starfsmenn hér vilja því
tryggja sína framtíð með því að
komast inn í þetta stóra fyrirtæki.
Það er þá ákvörðun MBF hversu
lengi er hægt að reka fyrirtækið.
Ef það verður ekki rekið áfram eru
framleiðendur ekki í neinni hættu
því mjólkin verður þá flutt í næsta
samlag á Egilsstöðum. Velji MBF
að reka fyrirtækið eitthvað áfram
er sjálfsagt hægt að hagræða í
rekstrinum, ekki síst með því að
breyta úr olíukyndingu yfir í raf-
magnskyndingu,“ segir Þórður.
Hugmyndin um sölu Mjólkur-
samlags Vopnfirðinga hefur verið
til umræðu sl. tvö ár. 94% hluthafa
samþykktu söluna.
MBF kaupir Mjólkursamlag
Vopnfirðinga hf.
Vilja með sölunni
tryggja framtíð sína
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Samlagið selt Þórður Pálsson
mjólkurbússtjóri segir söluna til að
tryggja stöðu framleiðenda og
starfsmanna samlagsins.
ÞÆR voru sannarlega búnar að sið
hefðarmeyja, konurnar sem tóku
þátt í hinu árlega Hefðarmeyjamóti
í golfi sem haldið var á golfvellinum
á Norðfirði nú á dögunum. Í þetta
sinn tóku um 30 konur úr Fjarða-
byggð þátt í mótinu. Ekki er lagt
mikið upp úr því sigra á þessu móti
heldur fremur að koma saman og
skemmta sér.
Hefðarmeyjar í golfi
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Hefðarmeyjamót Einbeittir kylfingar á leið í teiginn, þær Freyja Viðars-
dóttir, Anna Margrét Sigurðardóttir og Bjarnveig Jónasdóttir.
Eskifjörður | Allt útlit er fyrir að íbú-
arnir á Eskifirði fái heitt vatn í hús
fljótlega. Framkvæmdum við lagn-
ingu hitaveitu um Eskifjörð miðar
mjög vel og er fyrri áfanga verksins
að verða lokið. Framkvæmdir við síð-
ari áfangann eru þegar hafnar og
miðar þeim vel í umsjón G.V. Grafa
ehf. frá Akureyri, en þeir sjá um
framkvæmdir í báðum áföngum. Síð-
ustu vikurnar hefur verið unnið við
lagningu í Bleiksárhlíð, Fögruhlíð og í
hinu nýja hverfi Dal 2, en þar eru
nokkur hús í byggingu. Göturnar
verða svo teknar fyrir ein af annarri
út eftir bænum og stefnir verktaki á
verklok fyrir áramót. Nokkuð jarð-
vegsrask hlýst af framkvæmdunum
en jafnóðum og lagningunni er lokið
er gengið frá skurðum. Víða taka hús-
eigendur sig til og endurnýja gang-
stíga, plön og garða í tengslum við
framkvæmdina. Heitu vatni hefur
verið dælt um dreifiveituna um nokk-
urn tíma til prufu og hefur allt gengið
að óskum. Vélaverkstæði Eskifjarðar
ehf. hefur tekið að sér tengingu húsa
við dreifiveituna og er unnið að því
verki hörðum höndum. Reiknað er
með að veitan verði formlega tekin í
notkun á næstunni. Áætlað er að öll
hús á Eskifirði verði tengd hitaveitu
fyrir miðjan desember nk.
Ný hitaveita á Eskifirði
að komast í gagnið