Morgunblaðið - 25.08.2005, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2005 33
MINNINGAR
✝ Jón Skafti Krist-jánsson vélstjóri
fæddist í Reykjavík
16. ágúst 1937. Hann
lést á heimili sínu
þriðjudaginn 16.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
hjónin Guðrún Jóns-
dóttir, f. í Holtakoti í
Ljósavatnshreppi í
Suður-Þing. 1911,
og Kristján Hólm
Skaftason trésmíða-
meistari, f. á Akur-
eyri 1911. Jón Skafti
var næstelstur 13 systkina, elstur
er Þórhallur, Sverrir, d. 1976,
Skúli og Sigríður Anna. Sam-
mæðra er Ómar Skarphéðinsson.
Samfeðra eru Hólmfríður, Lilja
Kolbrún, Þorfinnur, Sigríður Mar-
grét, Þórunn Jóna, Kristín og
Bryndís.
Jón Skafti kvæntist 1963 eftirlif-
andi maka sínum Ernu Grétu
Ólafsdóttur, dóttur hjónanna Ólafs
Jónssonar vélstjóra og Sigríðar
Örnólfsdóttur frá Súgandafirði.
Jón og Gréta hófu sinn búskap á
Akranesi og eignuðust þau þrjú
börn. Þau eru: 1)
Kristján, f. 23.11.
1961, vélvirkja-
meistari, maki Lilja
Hákonardóttir, og
eiga þau Jón Skafta,
f. 1988, og Ólaf Inga,
f. 1992, en fyrir á
Kristján Berglindi, f.
1980, móðir hennar
er Aldís Stefánsdótt-
ir. Börn Berglindar
eru Aldís Ragna, f.
2000, og Ísar Valur,
f. 2005. 2) Sigríður,
f. 6.6. 1964, tækni-
teiknari, maki Þórir Gunnarsson,
og eiga þau Björk, f. 1997, en fyrir
á Sigríður Jón Þór, f. 1987, og Ástu
f. 1990, faðir þeirra er Kristinn G.
Jónsson. 3) Óli Þór, f. 26.6. 1968,
raffræðingur, maki Jóhanna B.
Andrésdóttir, og eiga þau Grétu f.
1993, og Viktor, f. 1999.
Jón Skafti starfaði mestallan
sinn starfsferil við vélgæslu til sjós
ásamt stöfum í landi tengdum sjáv-
arútvegi og vélbúnaði.
Útför Jóns Skafta verður gerð
frá Akraneskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Elsku pabbi, nú hefur þú kvatt okk-
ur í hinsta sinn en minning þín er okk-
ur kær og verður ekki tekin frá okk-
ur. Það er margs að minnast frá þeim
37 árum sem við áttum saman. Það
var margt brallað í sjóferðum sem ég
fór í með þér og síðar í bílskúrnum
heima, og ekki vantaði að þú varst
boðinn og búinn að veita tilsögn og
hjálparhönd hvenær sem var. Fjöl-
skyldan var þér alltaf mikils virði
enda varst þú duglegur að ferðast
með okkur systkinin hérlendis og er-
lendis á húsbíl, en sá ferðamáti var
þér einkar hugleikinn enda voru ferð-
irnar fjölmargar á 30 ára tímabili.
Ekki vantaði hvatninguna til náms
frá þér enda var það svo að við vorum
skólafélagar eftir að þú fórst að vinna
í landi og lærðir blikksmíði, og laukst
sveinsprófi með stæl.
Afabörnin skipuðu ávallt stóran
sess í lífi þínu og ekki vantaði að þú
varst reiðubúinn að leika við þau bæði
úti og inni hvenær sem var. Oft komu
bréf frá þér bæði á pappír og síðar
tölvupósti þegar þú tókst þá tækni í
þjónustu þína enda áttir þú fjölmarga
pennavini bæði hérlendis og erlendis.
Danmörk var þér alltaf hugleikin
og hafðir þú ferðast þar mikið og
varst hafsjór af fróðleik sem þú miðl-
aðir óspart til annarra um ferðamögu-
leika þar. Þrátt fyrir mikil veikindi
síðustu fimm árin voru æðruleysið og
léttleikinn alltaf í fyrirrúmi og sagðir
þú oft að þú værir í vinnu hjá Land-
spítalanum og fæði hjá apótekinu
þegar meðferðin stóð sem hæst.
Það var mér mikils virði að fá að
fylgja þér heim úr síðasta ferðalaginu
þínu, en þú ert minn besti vinur og því
vil ég þakka þér samfylgdina gegnum
lífið.
Þinn sonur
Óli Þór Jónsson.
Nú er komið að kveðjustund en ég
varð þeirrar gæfu aðnjótandi að
kynnast þér fyrir 18 árum þegar ég
kom inn á heimili þitt og Grétu. Þú
varst fjölskyldumaður mikill og hélst
vel utan um hana alla tíð, velferð
hennar var ofar öllu. Ferðalög voru
áhugamál þitt og fórst þú með hana
Grétu þína sem var þér svo kær í ófá-
ar ferðirnar innanlands og erlendis á
húsbílnum, Norðurlöndin urðu oft
fyrir valinu og varst þú duglegur að
miðla öðrum af reynslu þinni af ferða-
mennsku. Þú varst handlaginn, úr-
ræðagóður, nýjungagjarn og mælsk-
ur vel en umfram allt nákvæmur með
alla hluti sem þú tókst þér fyrir hend-
ur. Þú sýndir það líka þegar þú
kvaddir því þú kaust 68 ára afmæl-
isdaginn þinn 16. ágúst. Þetta var þér
líkt, nákvæmur upp á hundrað og
tuttugu prósent. Fyrir fimm árum
var þér kippt af vinnumarkaði, því þá
var bankað upp hjá þér með þeim
veikindum sem nú hafa sigrað, en þú
hélst reistur áfram og kvartaðir aldr-
ei.
Þú varst ótrúlegur og raunsær
fram á síðustu stund. Það er svo ótrú-
legt hvað ég finn sterkt fyrir þér þó
svo ég sjái þig ekki, því tengsl þín eru
svo sterk við heimili þitt sem þú reist-
ir á sínum tíma fyrir fjölskyldu þína
með dugnaði og þrautseigju.
Takk fyrir þær stundir sem þú
gafst okkur Óla, Grétu og Viktori.
Það var gott að vera í návist þinni
enda átt þú marga vini bæði unga sem
aldna.
Takk fyrir allt.
Jóhanna B. Andrésdóttir.
Elsku afi, takk fyrir allar stundirn-
ar sem þú áttir með okkur og allt sem
þú hefur kennt okkur. Þú verður
ávallt besti afi í heimi. Sofðu rótt,
elsku afi.
Gréta Óladóttir,
Viktor Ólason.
JÓN SKAFTI
KRISTJÁNSSON
Kistur - Krossar
Prestur - Kirkja
Kistulagning
Blóm - Fáni
Val á sálmum
Tónlistarfólk
Sálmaskrá
Tilk. í fjölmiðla
Erfisdrykkja
Gestabók
Legstaður
Flutningur kistu á
milli landa og
landshluta
Landsbyggðar-
þjónusta
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Sverrir
Einarsson
Bryndís
Valbjarnardóttir
Oddur
Bragason
Guðmundur
Þór Gíslason
Kársnesbraut 98 • Kópavogi
564 4566 • www.solsteinar.is
Helluhrauni 10, 220 Hfj.
Sími 565 2566
www.englasteinar.is
Fallegir legsteinar
á góðu verði
Englasteinar
Sendum
myndalista
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, systir og amma,
GUÐRÚN AGLA GUNNLAUGSDÓTTIR,
Sörlaskjóli 28,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðju-
daginn 16. ágúst.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Aðstandendur senda þakkarkveðjur til heimahjúkrunar Karitas, lækna og
starfsfólks krabbameinsdeilda Landspítalans.
Jón Helgason,
Gunnlaugur Jónsson, Kirsten Jensen,
Sigríður Helga Jónsdóttir,
Ingibjörg Guðrún Jónsdóttir, Davíð Godbold,
Ingibjörg Gunnlaugsdóttir,
Jón Örn, Sofie, Thor
og Astrid Gunnlaugsbörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
ERLENDUR KR. VIGFÚSSON,
Rjúpufelli 42,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut 11. ágúst
síðastliðinn.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Þökkum veittan stuðning.
Jóhanna S. Sigurðardóttir,
Vigfús Erlendsson, Ásta Kjartansdóttir,
Björk Erlendsdóttir, Símon Jónsson,
Sigurður Erlendsson, Rósa Williamsdóttir,
Guðmundur Erlendsson, Dagný Svavarsdóttir,
Guðbjörg Erlendsdóttir, Ólafur H. Ólafsson
og fjölskyldur.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
JÓHANNA SIGRÚN THORARENSEN,
Lágholti 17,
Mosfellsbæ,
lést að morgni miðvikudagsins 24. ágúst.
Benedikt Bent Ívarsson,
Sjöfn Thorarensen, Kristján Hermannsson,
Ívar Benediktsson, Kristín Reynisdóttir,
Agnes Guðríður Benediktsdóttir, Gunnar Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ODDNÝ AÐALBJÖRG JÓNSDÓTTIR,
Rauðalæk 20,
Reykjavík,
áður Sunnuhvoli, Fáskrúðsfirði,
sem lést á Landakotsspítala föstudaginn
12. ágúst sl., verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 25. ágúst kl. 13.00.
Jóhanna Ásdís Þorvaldsdóttir, Víðir Sigurðsson,
Guðný Björg Þorvaldsdóttir, Sigurður Þorgeirsson,
Jóna Kristín Þorvaldsdóttir,
Kristján Þorvaldsson,
Ómar Ásgeirsson,
Helga Jóna Óðinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær bróðir okkar,
ÓLAFUR EIRÍKSSON,
Grjóti,
Þverárhlíð,
sem andaðist sunnudaginn 21. ágúst, verður
jarðsunginn frá Borgarneskirkju laugardaginn
27. ágúst kl. 14:00.
Ingibjörg Eiríksdóttir,
Gunnar Eiríksson.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgun-
blaðið í fliparöndinni – þá birtist
valkosturinn „Senda inn minning-
ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs-
ingum).
Skilafrestur Ef birta á minningar-
grein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er ekki
unnt að lofa ákveðnum birtingardegi.
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein berist
áður en skilafrestur rennur út.
Lengd Minningargreinar séu ekki
lengri en 2.000 slög (stafir með bilum
- mælt í Tools/Word Count). Ekki er
unnt að senda lengri grein.
Minningargreinar