Morgunblaðið - 25.08.2005, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2005 41
DAGBÓK
Blindrafélagið stendur fyrir ráðstefnu ummannréttindi og misrétti en ráðstefnanhefst í dag og stendur í þrjá daga í Vík-ingasal Hótel Loftleiða. Fjallað er um
viðfangsefnið í víðum skilningi frá sjónarhóli fatl-
aðra en Sigurjón Einarsson er einn af aðalskipu-
leggjendum ráðstefnunnar: „Þessi ráðstefna er
hluti af norrænu samstarfi og ráðstefnur af þessu
tagi haldnar annað hvert ár. Þetta er í þriðja
skipti sem við höldum ráðstefnuna á Íslandi en
áður var það gert 1982 og 1995.“
Dagskráin er þétt skipuð og mætir fyrirlesarar
halda erindi á ráðstefnunni: „Við fáum til okkar
bæði innlenda og erlenda fyrirlesara. Af íslensk-
um má nefna Arnþór Helgason formann öryrkja-
bandalags Íslands og Ragnar Aðalsteinsson
hæstaréttarlögmann. Þeir munu aðallega skoða
viðfangsefni ráðstefnunnar út frá kjarabarátt-
unni,“ segir Sigurjón.
„Að auki fáum við fyrirlesara bæði frá Noregi
og Svíþjóð. Þar má helst nefna Kicki Nordstrom
sem er fráfarandi formaður Alheimssamtaka
blindra. Hún mun fjalla um mannréttindasátt-
mála SÞ sem núna er verið að endurskoða en við
höfum fengið áheyrnarfulltrúa við þá vinnu.
Einnig flytur erindi Bengt Lindquist en hann hef-
ur um árabil verið áheyrnarfulltrúi hjá SÞ en
báðir þessir fyrirlesarar eru mjög sjónskertir.
Síðan fáum við Marianne Hotved en hún er í
norskum starfshóp sem sér um lagagerð Noregs
hvað lýtur að mannréttindum. Hún mun fjalla um
mannréttindi og misrétti gagnvart blindum og
sjónskertum með hliðsjón af stöðu mála í Nor-
egi.“
Ráðstefnan hefst með móttöku í Höfða þar sem
Ólafur Ragnar Grímsson setur ráðstefnuna og
meðal viðburða á dagskránni er ferð með ráð-
stefnugestum í Bláa lónið en alls telja þeir 70
manns, þar af 60 erlendis frá. Ráðstefnan er
þannig skipulögð að eftir hvert erindi fjalla hópar
um þær spurningar sem fram hafa komið. Að auki
skila fulltrúar hvers lands fyrir sig skýrslu um
stöðu mála í sínu heimalandi og þau mál rædd.
„Sú umræða sem fer fram á þessum ráð-
stefnum er auðvitað mjög þörf,“ segir Sigurjón.
„Það verður að viðurkennast að við höfum
kannski ekki verið nógu dugleg að taka þátt í
henni því við teljum að ástandið sé svo gott hjá
okkur. En þegar betur er að gáð sjáum við að
hlutirnir eru ekki í eins góðu horfi og við trúum.
Því vonumst við til að starf af þessu tagi miði okk-
ur áfram á veginum við að bæta mannréttindi og
minnka það misrétti sem fatlaðir eru beittir.“
Ráðstefnur | Blindravinafélagið heldur ráðstefnu um mannréttindi og misrétti
Mannréttindi fatlaðra
Sigurjón Einarsson
fæddist í Reykjavík 4.
desember 1948. Hann
ólst upp í Vestmanna-
eyjum og lauk gagn-
fræðaprófi þaðan. Í
Noregi lauk hann mat-
vælafræðinámi árið
1974. Sigurjón starfaði
eftir það hjá Slátur-
félagi Suðurlands um
nokkurra ára skeið.
1987 Hóf hann starf hjá Tölvumiðstöð fatlaðra
og síðan hjá Svæðisskrifstofu málefna fatl-
aðra frá 1991.
Sigurjón hefur starfað mikið að félagsmál-
um og hefur síðustu 2 ár verið formaður
Blindrafélagsins. Sigurjón er giftur Önnu G.
Sverrisdóttur aðstoðarframkvæmdastjóra í
Bláa lóninu og eiga þau börnin Ingva Þór og
Maríu.
Sigrúnu svarað
Í VELVAKANDA Morgunblaðsins
fimmtudaginn 18. ágúst gerði Sig-
rún athugasemd við grein mína um
nýtt leiðakerfi Strætós bs. sem
birtist hér í blaðinu nokkrum dög-
um áður.
Í grein minni kom m.a. fram að
hvert stakt fargjald í strætó hefði
margfaldast í valdatíð R-listans og
sérstök unglingafargjöld verið af-
numin. Þar átti ég við stök far-
gjöld, eða staðgreiðslugjöld. Sig-
rún getur þess að hún hafi nýlega
keypt sérstakt unglingafarmiða-
kort. Af þessu tilefni langar mig að
útskýra mál mitt betur og rekja
breytingar sem orðið hafa á ung-
lingafargjöldum.
Sjálfstæðismenn tóku upp á sín-
um tíma sérstakt unglingafargjald
og gilti það bæði um staðgreiðslu
og farmiðakort. R-listinn afnam
hins vegar staðgreiðsluafslátt ung-
linga fyrir nokkrum árum. Nú er
það því svo að staðgreiðslufargjald
unglinga hækkar við 12 ára aldur
úr 60 krónum í 220 krónur og far-
miði af spjaldi úr 25 krónum í 120
krónur. Þess ber að geta að mjög
margir unglingar greiða farið með
staðgreiðslufargjaldi og fá því eng-
an afslátt.
Jórunn Frímannsdóttir
varaborgarfulltrúi.
Strætó aki Hringbraut
EF ég ætla úr Vesturbænum upp í
Kringlu verð ég þá að skipta um
vagn niðri í bæ? Væri ekki hægt að
láta einhvern þessara 414 strætis-
vagna sem fara um Suðurgötuna
ganga beint eftir Hringbrautinni?
Hvernig væri t.d. að fá einn
strætisvagn sem gengi beina leið
frá Eiðistorgi upp í Mjódd?
Bergdís.
Engin heillaskeyti
um helgar
ÉG ætlaði að senda heillaskeyti
nýlega um helgi til Danmerkur en
komst þá að því að það er hætt að
veita þessa þjónustu, einungis er
hægt að senda venjulegt skeyti.
Eins ætlaði ég að senda skeyti
til Keflavíkur á laugardegi vegna
stórafmælis en þá er það ekki bor-
ið út fyrr en á mánudegi. Finnst
mér þetta orðin léleg þjónusta.
Ein hissa.
Tjörnin
VÉR mótmælum allir vegna tillögu
Dags borgarfulltrúa um að reisa
kaffihús í Hljómskálagarðinum. Vil
ég benda honum á að þetta er grið-
land fugla, t.d. hefur kríum sem
verpa í tjarnarhólmanum fækkað
um 50% vegna færslu Hring-
brautar. Nær væri að efla áhuga
fólks á fuglaskoðun og útivist. Þeg-
ar eru 2 kaffihús staðsett við tjörn-
ina og er það yfir nóg.
Ingi Stein.
Gullhringur týndist
GULLHRINGUR, steinlaus, týnd-
ist um verslunarmannahelgina,
sennilega í miðbænum. Skilvís
finnandi hafi samband í síma
588 0082.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Það er aldrei að vita.
Norður
♠4
♥ÁKD10 V/NS
♦Á642
♣ÁKDG
Suður
♠ÁK52
♥G963
♦D7
♣1084
Vestur opnar á veikum tveimur í
spaða og síðan liggur leið NS upp í
alslemmu í hjarta:
Vestur Norður Austur Suður
2 spaðar Dobl 3 spaðar 4 hjörtu
Pass 4 grönd Pass 5 tíglar
Pass 7 hjörtu Allir pass
Hvernig er best að spila með
trompi út?
Tvær spaðastungur í borði myndu
gefa þrettán slagi, en samgangurinn
leyfir það ekki með góðu móti, jafn-
vel þótt hjartatían sé yfirtekin með
gosa (og treyst á 3-2 legu í trompi).
Blindur mun eiga út þegar eitt
tromp er eftir og þá er ekki um ann-
að að ræða en spila laufunum í þeirri
von að sá með þriðja hjartað sé með
fjórlit í laufi.
Í ljósi sagna er svo sem ekki ólík-
legt að austur sé með skiptinguna 2-
3-4-4, en það er ástæðulaust að gera
ráð fyrir því strax í byrjun. Besta
áætlunin er að taka annað tromp og
spila svo háspilunum í láglitunum –
og byrja á tígulás!
Norður
♠4
♥ÁKD10
♦Á642
♣ÁKDG
Vestur Austur
♠D108763 ♠G9
♥2 ♥8754
♦K ♦G109853
♣76532 ♣9
Suður
♠ÁK52
♥G963
♦D7
♣1084
Vissulega eru ekki miklar líkur á
því að tígulkóngurinn sé blankur, en
allt getur gerst og það kostar
sannarlega ekkert að prófa tígulinn
fyrst.
Þegar kóngurinn fellur er nóg að
trompa einn spaða í borði og nota
samganginn í tígli til að aftrompa
austur. Sem sagt: Hjarta í öðrum
slag og svo tígulás.
Dálítið lúmskt.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. d4 Rf6 2. Bg5 d5 3. Bxf6 gxf6 4.
g3 c6 5. Rd2 Bf5 6. e3 e6 7. Rgf3
Bd6 8. Rh4 Bg6 9. f4 f5 10. Be2 Rd7
11. Bf3 Rf6 12. De2 De7 13. 0-0-0 0-
0-0 14. c4 Kb8 15. c5 Bc7 16. b4 Re4
17. Bxe4 fxe4 18. Hhf1 f5 19. Rxg6
hxg6 20. h4 Ka8 21. Kc2 Hb8 22. a4
b6 23. Hb1 Hb7 24. Da6 Dd7 25. Rb3
Hhb8 26. Kc3 Bd8 27. b5 Be7 28.
bxc6 Dxc6
Staðan kom upp í landsliðsflokki
Skákþings Íslands sem lauk fyrir
skömmu í Háskólanum í Reykjavík.
Björn Þorfinnsson (2.328) hafði hvítt
gegn Sævari Bjarnasyni (2.255). 29.
Ra5! Dxa4 30. Ha1 Dd7 31. Rxb7
Hxb7 32. Hfb1 bxc5 33. Hxb7 cxd4+
34. exd4 Dxb7 35. Da4 Hvítur fær
nú sókn sem erfitt verður að eiga við
fyrir svartan. 35. – Dc7+ 36. Kd2
Bd8 37. Ha3 Db6 38. Kc2 a5 39. Hc3
Ka7 40. Dd7+ og svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Hlutavelta | Þau Kormákur, Friðrik, María, Steinar og Axel héldu tombólu og
söfnuðu 6.810 kr. til styrktar Rauða krossi Íslands.
Morgunblaðið/ÞÖK
Hlutavelta | Þau Lilja, Hjördís og Jónas héldu tombólu og söfnuðu 2.191 kr. til
styrktar Rauða krossi Íslands.
Morgunblaðið/Jim Smart
Heiti Potturinn
Trompmiði er auðkenndur með bókstafnum B en einfaldir miðar með E, F, G
og H. Gangi vinningar ekki út bætast þeir við Heita pott næsta mánaðar.
Birt með fyrirvara um prentvillur.
8. flokkur, 24. ágúst 2005
55484 B kr. 7.800.000,-
55484 E kr. 1.560.000,-
55484 F kr. 1.560.000,-
55484 G kr. 1.560.000,-
55484 H kr. 1.560.000,-
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
Auglýst er eftir framboðum til
kjörnefndar Varðar-Fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
Samkvæmt ákvörðun stjórnar Varðar-Fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík er hér með auglýst eftir
framboðum til kjörnefndar Varðar-Fulltrúaráðsins.
Framboðsfrestur rennur út
föstudaginn 2. september kl. 17.00
Samkvæmt 11. gr. reglugerðar fyrir Vörð-Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík eiga 15 manns sæti í kjörnefnd og skulu 8 kjörnefndarmenn
kosnir skriflegri kosningu af Fulltrúaráðinu. Samkvæmt 11. gr.
reglugerðarinnar telst framboð gilt ef það berst kosningastjórn fyrir lok
framboðsfrests, enda sé gerð um það skrifleg tillaga af 5 fulltrúum hið
fæsta og ekki fleiri en 10 fulltrúum. Frambjóðandi hafi skriflega gefið kost
á sér til starfans. Tilkynning um framboð berist stjórn Varðar-Fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, Valhöll við Háaleitisbraut.
Stjórn Varðar–Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík.