Morgunblaðið - 25.08.2005, Page 48
48 FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
„The Island, virkilega
vel heppnuð pennumynd,
skelfileg en trúleg framtíðarsýn!!“
S.U.S XFM
„The Island er fyrirtaks afþreying.
Ekta popp og kók sumarsmellur. “
-Þ.Þ. Fréttablaðið.
l i i .
ll .
- . . r tt l i .
Frábær
Bjölluskemmtun
fyrir alla.
Skelton Key kl. 5.45 - 8 - 10.10 b.i. 16
Herbie Fully Loaded kl. 6 - 8 - 10
The Island kl. 5.30 - 8 og 10.30 b.i. 16
Dark Water kl. 10 b.i. 16
Madagascar - enskt tal kl. 6 - 8
Batman Begins kl. 6 - 8.30 b.i. 12
HVAÐ MYNDIR ÞÚ GERA EF ÞÚ
KÆMIST AÐ ÞVÍAÐ ÞÚ VÆRIR AFRIT
AF EINHVERJUM ÖÐRUM?
-S.V. Mbl.
-dv-
S.U.S. XFM
flottur tryllir
„SAMKVÆMT rannsóknum höf-
undar Tippatals hefur stór hluti
karlmanna reynt að sjúga sinn eigin
lim og merkilega margir haft ár-
angur sem erfiði,“ segir í frétta-
tilkynningu frá aðstandendum leik-
sýningarinnar Tippatals, sem
frumsýnd verður á veitingastaðnum
NASA 26. október. Sýningin er með
svipuðu sniði og verk á borð við
Hellisbúann og Píkusögur, en þau
nutu mikillar hylli landans. Í aðal-
og eina hlutverkinu er grínistinn
góðkunni Auðunn Blöndal, eða
Auddi Blö eins og hann er stundum
kallaður.
Höfundur verksins er Bretinn
Richard Herring, þekktur rithöf-
undur, grínisti og sjónvarpsmaður.
Við vinnslu verksins kom hann
meðal annars til Íslands til að skoða
reðursafn Sigurðar Hjartarsonar.
Sjálfur hefur hann sett upp Tippa-
tal, eða Talking Cock, í Edinborg og
Lundúnum en unnið er að upp-
færslu verksins víða um heim. Leik-
stjóri er Sigurður Sigurjónsson og
leikskáldið Jón Atli Jónasson sá um
að snara verkinu yfir á íslensku.
Vel þýtt
Audda líst vel á verkefnið. „Já, ég
er búinn að lesa handritið og það er
mjög skemmtilegt. Afar vel þýtt.
Svo er mikill heiður að fá að vinna
með Sigga Sigurjóns,“ segir hann.
Aðspurður hvort ekki verði erfitt
að fara með texta um þetta feimn-
ismál sem æxlunarfæri karlmanns-
ins hefur hingað til verið í samfélag-
inu segist hann ekki telja að svo
verði. „Nei, þetta er nefnilega ekk-
ert dónalegt leikrit. Það verður
örugglega ekkert aldurstakmark
því það er tekið á umfjöllunarefninu
á mjög sérstakan og hressan máta.
Enginn dónaskapur, þannig séð,“
segir hann. Auddi segir að málefni
tippa sé verðugt umræðuefni. „Fólk
á eftir að kannast við ýmislegt í
þessu verki, bæði karlmenn og kon-
ur. Það á erindi við alla, ekki síður
konur en karla.“
Þetta er frumraun Audda á leik-
sviði en ekki á sviði yfir höfuð.
„Maður hefur verið með uppistand
þannig að maður er alveg vanur því
að standa einn á sviði. Það verður
kannski svolítið skrýtið að þurfa að
fylgja handriti, en þetta verður nú
aðeins laust í reipunum og svigrúm
fyrir ákveðinn spuna,“ segir hann.
Hann segir að leikritið verði að
hluta til gagnvirkt, með samtölum
við áhorfendur.
Engin hætta á dónaskap
Sýningin fer fram á NASA við
Austurvöll og Audda líst glimrandi
vel á það. „Já, ég held að það geti
myndast skemmtileg stemmning
þar. Tilvalið fyrir fólk sem er á leið-
inni á pöbbarölt.“
Aðspurður telur hann ekki að
hætta sé á að áhorfendur fari í mikl-
um mæli að „sjúga sinn eigin lim“
eins og stendur í fréttatilkynning-
unni. „Ég efast um það. Þetta er
ekkert dónalegt og ef menn ætla að
fara að reyna það verður það fljót-
lega stöðvað.“
Leiklist | Auddi Blöndal leikur í Tippatali sem frumsýnt
verður í októberlok á veitingastaðnum NASA
Limir í sviðsljósinu
Eftir Ívar Pál Jónsson
ivarpall@mbl.is
Morgunblaðið/Eyþór
Auddi verður einn á sviðinu og ekki með Sveppa og Pétur sér til halds og trausts í Tippatali.
SÉRSTAKUR mannréttinda-
flokkur er einn sjö flokka Alþjóð-
legrar kvikmyndahátíðar í
Reykjavík, sem hefst í sept-
emberlok. Búið er að staðfesta
þær sex myndir, sem sýndar
verða í flokknum, sem er skipu-
lagður í nánu samstarfi við UNI-
FEM á Íslandi. Munu samtökin
standa fyrir fyrirlestrum og mál-
þingum tengdum efni kvik-
myndanna. Aðstandendur mynd-
anna eru væntanlegir til landsins
og munu taka þátt í fyrirhugaðri
ráðstefnu, auk þess sem bíógest-
um gefst einstakt tækifæri til
þess að spyrja leikstjórana spjör-
unum úr að sýningum loknum.
Áður var búið að tilkynna að
Óskarsverðlaunamyndin Born
Into Brothels yrði sýnd á hátíð-
inni sem og Turtles Can Fly,
handhafi Kristalbjarnarins í
Berlín 2005 og Gegen Die Wand,
sem hreppti Gullbjörninn í Berl-
ín 2005. Nú hafa bæst við mynd-
irnar Moolaadé, Lost Children
og Zero Degrees of Seperation.
„Myndirnar eiga það allar
sameiginlegt að varpa ljósi á
vandamál sem tengjast mann-
réttindum víðsvegar um heim.
Hvort sem það eru erfiðleikar
innflytjenda í ókunnugu landi
eða áhrif hnattvæðingar á efna-
hag fátækra þjóða, þá vekja
myndirnar upp spurningar um
ábyrgð og skyldur þeirra sem
fylgjast með úr fjarlægð. Slíkar
kvikmyndir eru sannkallaður
hvalreki fyrir allt hugsandi fólk
og þá sem gera sér grein fyrir
mikilvægu hlutverki kvikmynd-
arinnar í upplýstu samfélagi,“
segir í tilkynningu frá hátíðinni.
Moolaadé er leikin mynd frá
Senegal er hreppti Un Certain
Regard-verðlaunin á Cannes
2004 og fjallar um umskurð
stúlkna í afrísku þorpi.
Lost Children er heimild-
armynd frá Þýskalandi sem
hreppti Panorama-áhorf-
endaverðlaunin í Berlín 2005.
Myndin fjallar um börn sem er
rænt til að stunda hermennsku
og segir sögu fjögurra barna
sem sleppa frá hernum og hvern-
ig þeim tekst að fóta sig í sam-
félaginu á ný.
Zero Degrees of Seperation er
heimildarmynd frá Kanada og
verður leikstjórinn Elle Flanders
viðstödd hátíðina. Myndin fjallar
um tvo ísraelsk-palestínsk sam-
kynhneigð pör en þrátt fyrir að
elskast eru pörin óvinir í stríði.
Hinir flokkar hátíðarinnar eru
Vitranir, Fyrir opnu hafi, Sjón-
arrönd, Í kastljósinu, Miðnæt-
urmyndir og Noregur. Alls verða
yfir 50 myndir sýndar á hátíð-
inni.
Kvikmyndir | Alþjóðleg kvikmynda-
hátíð í Reykjavík
Verðlauna
myndir í mann-
réttindaflokki
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í
Reykjavík fer fram 29. sept-
ember til 9. október.
Born Into Brothels hreppti Óskarinn fyrir bestu heimildarmyndina
2005 og Sundance-áhorfendaverðlaunin 2004 en hún fjallar um börn
vændiskvenna í Kalkútta á Indlandi.