Morgunblaðið - 09.11.2008, Blaðsíða 44
44 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 2008
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dýrahald
Týndur fressköttur, Hafnarfjörður
Sparro okkar týndist frá Suður-
bænum, þann 20.10. Hann er dökk-
bröndóttur með hvítar hosur, hvítt
undir höku og brúnt trýni, var með
svarta ól. Vinsamlegast hafið sam-
band í s: 659-4279/565-4279 Þórunn,
fundarlaun í boði.
Til sölu ættbókarfærðar
ungverskar vizslur
Frábærir veiðihundar og yndislegir
heimilis- og fjölskylduhundar. Eru
tilbúnir til afhendingar.
Upplýsingar í síma 898 1779.
Samoyed hvolpur
Þann 4. september eignuðust Týra
og Stormur 6 hvolpa. Fimm eru farnir
til nýrra eigenda en Fífa er eftir.
Gullfalleg, glöð og forvitin.
Sími 663 5369, Salome.
Norskir skógarkettlingar til sölu
Hef til sölu kettlinga, norska skógar-
ketti. Þrír högnar eftir. Upplýsingar í
síma 899-4485 eftir kl. 16. Sjá nánar
á heimasíðu, www.nordheima.com
Chihuahua - mjög fallegir hvolpar
til sölu: Ættbókarfærðir, örmerktir og
heilsufarsskoðaðir. Fæddir 14. sept,
afhending fer fram 30. nóvember.
Ljúf og falleg gjöf sem kallar fram
bros ... Verð kr. 120.000.
Upplýsingar í síma 8943929.
Fatnaður
Mokkakápa
með loðskinni á kraga og ermum.
Stærð nr. 40. Verð 45 þ. Upplýsingar í
síma 554-0345.
Húsnæði í boði
Íbúð á 70 þúsund á mánuði
Tveggja herbergja íbúð í 105 Rvk.
á aðeins 70 þús. á mánuði, til sölu
miðað við yfirtöku á láni, einstakt
tækifæri, engin útborgun.
Upplýsingar í síma 858 5810.
Íbúð til leigu í Norðurmýri (105)
Þriggja herbergja 65 fm íbúð til leigu
á Skeggjagötu í Norðurmýri. Hafið
samband við Vöku, sími: 895 9178 /
+47 906-93-871. Tölvupóstur:
vaka.antonsdottir@gmail.com
Íbúð - Arnarnesi, Garðabæ.
Falleg 3ja herb. íbúð ca.100 fm við
sjávarsíðuna. Sér inngangur og bíla-
stæði. Húsb., rafm., tv og hiti innif.
Leigist rólegum og reykl. einstakl.
eða pari (barnlausu). Gæludýr
bönnuð. Laus strax. Verð 139 þús.
S: 554 5545 og 867 4822.
Tvíbýlishús í fallegu og grónu
umhverfi
Húsið er staðsett í barnvænu hverfi,
stutt er í skóla, verslanir og
tómstundir. Baðherbergi og eldhús
endurnýjuð og húsið málað að utan
2007. Suðurgarður með verönd og
heitum potti. Innkeyrsla og stétt eru
hellulögð með hitalögn. Laust frá
1. des. 185.000 kr. á mán. Sendið
póst á hera08@ru.is
Til leigu í Hafnarfirði. Erum að
auglýsa nokkar íbúðir í Hafnarfirði.
Sjá www.leigulidar.is - sími 517-3440
Til leigu við Bjallavað 1-3,
110 Rvk. Glæsileg 3ja herbergja íbúð
til afhendingar strax. Sérinngangur,
bílageymsla og lyfta í húsinu.
Langtímaleigusamningur, sjá
www.leigulidar.is eða 517-3440.
Spánn - Alicante - Torrevieja
Nú er tækifæri - lækkað verð.
Fallegt nýtt raðhús til sölu eða leigu.
Útborgun má dreifast á 4-5 ár, eða
tilboð. S. 899 2940.
SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI TIL LEIGU
Til leigu stök skrifstofuherbergi mið-
svæðis í Reykjavík, og Hafnarfirði.
Góð staðsetning og góð að-staða, allt
innifalið í leiguverði. Verð pr. skrif-
stofuherb. kr. 30-40 þús.
Upplysingar í síma 892 7798.
Einstök íbúð > R107 > 2-3 svefnh.
2-3 stofur. Kósý en björt. Nýtt eldhús.
Ný sólstofa m. kamínu + ægifögru
útsýni. Nýleg gólfefni. Gólffl. um 100
fm. L=175 þ./mán., innif. hússj. Ein-
hver húsgögn geta fylgt:
gudrunkr@visir.is
Einbýli - Vesturberg
Einbýli til leigu, 166 fm, 6 herbergja.
Vesturberg. Langtímaleiga. Uppl. í
síma 693 7815.
2 herb. íbúð í 107
Skemmtileg íbúð til leigu í 107 hverfi.
2 herb., leiga 90 þús., tveir mán. fyrir-
fr. Áhugasamir hringið í Sif 848 8577
eftir klukkan 20:00.
1 og 2 manna herbergi með
húsgögnum, sjónvarpi og inter-
neti Aðgangur að eldhúsi og
þvottahúsi, kr. 40.000 til 80.000 á
mánuði, við Lokastíg 101 Reykjavík.
Sími 861 4142, kl. 10.00 til 16.00, en
ekki á öðrum tímum.
101 Reykjavík - ÚTSÝNI - VIEW
Falleg, björt 2 herb. ca. 60 fm íbúð á
hæð í rólegri götu við Landspítala
Hringbraut. Uppþvottavél, ísskápur,
þvottavél og einhver húsgögn geta
fylgt. Leigist í lengri eða skemmri
tíma.
S. 565-7761 / steinage@simnet.is
Atvinnuhúsnæði
Til leigu nýinnréttuð skrifstofu-
herbergi í 104 Rvk. Securitas-
öryggiskerfi. Tölvulagnir. Góð
samnýting. Uppl. í síma 896 9629.
Iðnaðarhúsnæði
Til leigu 143 fm iðnaðarhúsnæði á
jarðhæð við Dugguvog/Kænuvog,
104 Rvk, ásamt 150 fm afgirtu
útisvæði. Uppl. í síma 896 9629.
65 fm atvinnuhúsnæði í Faxafeni
Til sölu u.þ.b. 65 fm atvinnuhúsnæði í
Faxafeni með innkeyrsludyrum.
Upplýsingar í síma 897 4912 /
gigja@svei.es
Sumarhús
www.floridahus.is
Glæsileg sumarhús í Orlando Flórída
til leigu. www.floridahus.is
info@floridahus.is
Sumarhús til leigu í Brekkuskógi
Stórglæsilegt sumarhús til leigu í
Brekkuskógi. Heitur pottur og allt
fyrsta flokks. Kynnið ykkur málið á
www.brekkuskogur.com
Sumarhús - orlofshús.
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbúin
hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Málverk
Olíumálverk eftir ljósmyndum
Portret málverk eftir ljósmyndum,
einnig dýra- og landslagsmálverk.
Ótrúlega vel gerð málverk!
Skoðið betur á www.portret.is
Námskeið
Hvíldu þig á öllu og dansaðu!
Magnað helgardansnámskeið í Rvík
14. nóv. sem nefnist Hristu sálina
með dansinum þínum! Endurnærandi
stund fyrir þig með þér í gegnum
dansmeðferð. Skráning og uppl. í
síma 848 5366 og á www.pulsinn.is
Til sölu
Nýlegur ROSENGRENS P234
skjala- og peningaskápur
Utanmál H:123 B:78 D:62. Innanmál
H:100 B:60 D:44, eldþol 120 mínútur.
Læsingarbúnaður: Talnalás.
Innréttingar: Hillur.
Verð kr. 150.000 eða tilboð.
Uppl. s. 869 2561.
Verslun
www.speki.net - Sniðugar gjafa-
vörur fyrir alla aldurshópa. Laser-
skorinn kristall, bækur, spil, dul-
spekivörur og margt fleira.
Heimasíða: http://www.speki.net
Óska eftir
19" vetrardekk óskast
Óska eftir að kaupa 19" vetrardekk.
Upplýsingar í síma 698-9898.
Viðskipti
Ert þú góður í viðskiptum?
Sæll, ert þú góður í viðskiptum?
Langar þig að vinna sjálfstætt?
Um er að ræða ráðgjafastarf hjá
MLM fyrirtæki. Vel launað tækifæri.
S: 865-5747 / www.lrlive.net
Þjónusta
Jólaseríur o.fl.
Erum byrjaðir að setja upp
jólaseríurnar fyrir fyrirtæki og
einstaklinga. Láttu rafvirkja sjá um
jólaljósin. Útvegum seríur og allt
tilheyrandi. S: 895-9010.
Geymdu það sem þér þykir vænt
um. Öryggishólf fyrir heimili, hótel og
heimavistarskóla, sumarbústaði og
vinnustaði.
Rökrás ehf. Kirkjulundi 19.
Sími 565 9393. www.rokras.is.
Byggingavörur
www.vidur.is
Harðviður til húsbygginga. Vatns-
klæðning, panill, pallaefni, parket
o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði.
Sjá nánar á vidur.is.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Málarar
Viltu láta mála fyrir jólin?
Snögg og góð þjónusta.Upplýsingar í
síma 868 5171.
Málningarvinna
Þaulvanur málari ætlar að bæta við
sig verkefnum. Inni og úti. Vönduð og
öguð vinnubrögð. Sanngjarnt verð.
Uppl. í síma 897 2318.
Ýmislegt
Óska eftir íbúð til kaups
Óska eftir skuldsettri íbúð á höfuð-
borgarsvæðinu í skiptum fyrir skuld-
settan bíl (Nissan Patrol SE árg.
2008, ekinn 6000 km. 33” breyttur).
Uppl. í síma 893 7211.
Gallabuxur og bolir
Mikið úrval af flottum toppum,
bolum, skyrtum, peysum og galla-
buxum. Stærðir 40-60.
Belladonna, Skeifunni 11D,
s: 517-6460. www.belladonna.is
Fréttasafn í boði
Yfirgripsmikið safn frétta og
fréttatengds efnis úr ljósvaka-
miðlunum undanfarin 15-20 ár.
Þúsundir klukkutíma á hundruðum
myndbanda, sem spanna ítarlega
umfjöllun um öll helstu álitamálin
í íslensku samfélagi á þessu ára-
bili og margt fleira. Útrásin öll í
máli og myndum. Einstaklega
áhugavert efni í ljósi nýliðinna
atburða. Í boði er vinna við að
skrásetja efni og dagsetningar.
Skilaboð frá áhugasömum
sendist á box@mbl.is merkt
,,Gamla Ísland - 22005”, fyrir
19. nóvember 2008.
✝ Agnes GuðrúnIngólfsdóttir
fæddist á Akureyri
1. ágúst 1930. Hún
andaðist á líkn-
ardeild Landspít-
alans í Kópavogi
þriðjudaginn 8.
október síðastlið-
inn. Foreldrar
hennar voru Ingóf-
ur Árnason, f. á
Auðbrekku í Hörg-
árdal 1. mars 1904,
d. á Akureyri 21.
desember 1996, og
Guðný Margrét Magnúsdóttir frá
Hafnarnesi við Fáskrúðsfjörð, f.
14. september 1899, d. 27. sept-
ember 1989. Börn þeirra, Svan, f.
6. nóvember 1925, kvæntur Helgu
Agnes giftist annan í jólum
1952 Hákoni Haukdal Jónsyni, f.
29. janúar 1925. Þau byrjuðu að
búa á Akureyri en bjuggu lengst,
eða í yfir 30 ár, í Holtagerði 50 í
vesturbæ Kópavogs. Börn þeirra
eru: Ólafur Jón, f. 4. janúar 1952,
kvæntur Kristínu Helgu Jónatans-
dóttur, f. 10. maí 1952, Erla Mar-
grét Jarvis, f. 8. júní 1953, gift
Raymond Jarvis, Bergþóra, f. 8,
september 1956, sambýlismaður
Pétur Andrésson, f. 25. nóvember
1958, Jón Ingi, f. 7. september
1960, trúlofaður Guðbjörgu Mark-
úsdóttur, f. 22. maí 1966, Linda
Björk, f. 22. janúar 1968, gift
Magnúsi Gunnlaugsyni, f. 15. maí
1968, og Ingólfur, f. 27. apríl
1970.
Agnes var jarðsungin í kyrrþey.
Guðmundsdóttur,
Árni Magnús, f. 25.
júní 1927, d. 28. júlí
1998, kvæntur
Björgu Ragnheiði
Sigurjónsdóttur, Sig-
ríður Guðbjörg
Ólafía, f. 17. nóv-
ember 1928, gift Sig-
urði Aðalsteini
Björnssyni, Agnes
Guðrún, sem hér er
minnst, Hrafnhildur
María, f. 4. október
1932, gift Ólafi Að-
albjörnssyni, Hrefna,
f. 1. október 1936, gift Kristjáni
Sveinssyni, Lára Kristín, f. 25.
maí 1949, gift Páli Ásgeirssyni og
Inga Björk, f. 13. apríl 1943, gift
Vilhelm Arthúrssyni.
Elsku mamma, nú er komið að
kveðjustund. Við systkinin eigum
margar góðar minningar sem eru
okkur dýrmætar og ógleymanleg-
ar. Fimmtudagskvöldin voru alltaf
svo skemmtileg, en þá sátum við
saman inni í stofu og spiluðum eða
hlustuðum á sögurnar í RÚV.
Einnig spiluðum við mikið í eldhús-
inu, líka þegar gestir voru í heim-
sókn eða tókum fram kúluspilið.
Það var mikið hlegið og sögur
sagðar og nokkrir í fýlu ef þeir
töpuðu (synirnir) og púkinn í okkur
kom í ljós. Góð nærvera, hlýja og
kærleikurinn sem þú sýndir okkur
mun haldast áfram með okkur
systkinunum, nema gagnvart Sjálf-
stæðisflokknum enda fengum við
oft að heyra mömmu og pabba kýt-
ast (eins og þau orðuðu það) um
stjórnmál. Heima var alltaf gott að
vera og mikið skreytt yfir hátíð-
irnar og sem krakkar fengum við
alltaf að leika okkur þar sem við
vildum, bara ekki vera með læti,
margar styttur brotnuðu og aldrei
varstu reið við örverpið þegar hann
braut þær. Það var mikið hlegið
heima, við gátum meira að segja
hlegið saman á líknardeildinni í
Kópavogi, blóðgjöfin frá Davíð
Oddssyni fékk þig til að hlæja og
dæmigert fyrir þig að segja okkur
ekki hvað mikið þú værir veik,
enda varstu aldrei veik, alltaf svo
sterk og hörð af þér og við máttum
ekki hafa mikið fyrir þér. Þú sagðir
alltaf við okkur „þið eigið ekki að
henda peningum í blóm“ þegar við
færðum þér blóm, sem gerði það
bara skemmtilegra. Þú sagðir okk-
ur ekki heldur hvað þú fyndir mik-
ið til í lokin, alltaf að hlífa okkur
börnunum, alveg fram að lokum.
En núna finnur þú ekki lengur til
og þú verður alltaf í hjörtunum
okkar, þú ert okkar lifandi trú, ljós
og yndi. Hvíl í friði elsku mamma.
Við systkinin viljum í lokin þakka
Agnes Guðrún Ingólfsdóttir