Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 27
Skirnir]
Merkisár í sögu Alþingis.
21
i Skógum, forfaðir Skógamanna. Hann virðist hafa verið
hinn mikilhæfasti maður. Sonur hans var Geirmundur afi
Brands í Skógum, er mun hafa verið uppi um 1000. 930
hefir Þrasi vel getað verið á lífi og sótt þing, eða þá Geir-
mundur sonur hans, eða þá báðir. Næstur verður undir
Eyjafjöllum Hrafn hinn heimski, er bjó á Rauðafelli hinu
eystra og er kallaður göfugmenni mikið, forfaðir Odda-
verja og Sturlunga. Sonur Hrafns var Jörundur goði faðir
Valgarðs hins gráa og Úlfs örgoða, föður Runólfs. Jörund-
ur er í höfðingjatali Landnámu talinn með mestu höfðingj-
um um 930. Hann hefir þá vafalaust verið á Alþingi. Þor-
geir hörðski bjó í Holti undir Eyjafjöllum, faðir Holta-Þóris.
Þeir feðgar, annar eða báðir, geta hafa verið á þingi 930.
Þeir Holtsmenn voru í höfðingjatölu, t. d. Þorgeir Skorar-
geir um 1010. Vestan Markarfljóts hefir göfgastur maður
verið Hrafn sonur Ketils hœngs landnámsmanns úr Hrafn-
istu. Hrafn varð fyrsti eiginlegi lögsögumaður íslands, og
er hann einn sá maður, er með fullri vissu hefir sótt hið
fyrsta þing. Fjórir voru bræður Hrafns, Helgi, Stórólfur,
Vestar og Herjólfur. Állir hafa þeir verið gildir rnenn og
hafa sennilega verið á þingi 930. Hrafn er ekki talinn með-
al höfðingja i höfðingjatali Landnámu, þó að undarlegt
megi virðast. Þar á móti er Mórður gigja talinn þar, son-
arsonur Sighvmts rauða landnámsmanns, er byggði í land-
námi Ketils hængs. Mörður gígja hefir verið ungur maður
930, en þá hefir Sigmundur faðir hans liklega verið alveg
nýveginn, og Mörður þá nýtekinn við mannvirðingum, og
sótt hefir hann þá þing 930. Mörður bjó á Velli í Hvol-
hreppi. í Fljótshlíð var mestur ntaður Baugur fóstbróðir
Hœngs. Sonur hans vá Sigmund föður Marðar gígju þessi
missiri. Þeir synir Baugs urðu allir sekir úr Hlíðinni, Gunn-
ar, Eyuindur og Steinn. Er vandsagt um atbeina þeirra að
þinghaldi 930. Þeir hafa þó verið í betri manna tölu. Ekki
virðast margir fleiri miklir höfðingjar verið hafa í Rangár-
þingi. Þorsteinn rauðnefur er einna líklegastur til að hafa
verið atkvæðamaður, Þorsleinn tjaldstœðingur, er bjó í