Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 264
258
Alþingi árin 1798—1800.
[Skírnir
»orðaþjark« eiga sér þar stað, eins og tíðkað var við hina
eldri dómstóla. Annars var frumvarpið í öllum meginat-
riðum samhljóða tilskipuninni um landsyfirdóminn, frá 11.
ág. 1800.
Málið gekk nú á milli ráðamanna i kansellíinu og fékk
þar einróma góðar undirtektir. Og það sætir furðu, hve af-
greiðslan þar var hröð, og verður manni fyrir að ætla, að
af nefndarmanna hálfu hafi málinu verið fylgt allfast eftir.
Það greiddi ennfremur fyrir fullum skilningi á málinu, að
norska tilsk. um stiftsyfirréttina var svo nýlega um garð
gengin. Engin þörf var heldur að skjóta málinu til álits
stiftamtmanns, því að fyrir lá frá hendi sonar hans, Magn-
úsar, útdráttur úr einkabréfi, dags. 5. okt. 1799, að þó að
hann óskaði þess gjarna, að ísland fengi dómaskipun í
likingu við þá norsku, þá hefði hann enga ástæðu til að
skrifa kansellíinu um það og leggja þar neitt til mála; en
ef tillaga kynni að koma fram um það, þá væri unní að
leggja fram úr dómsmálasjóði 100 rdl. árlega til hinnar
nýju stofnunar og jafna fjárhæð úr hegningarhússjóðnum,
en meiri tillagna frá íslands hálfu mætti ekki vænta auk
launa þeirra, sem embættismenn við þáverandi dómstóla nytu.
Eftir að nefndin sjálf hafði skilað af sér málinu, sést
það, að Magnús Stephensen hefir lagt fram skýrslu og
skýringar fyrir kansellíið, sérstaklega um fjárhagshlið máls-
ins, sem hlaut að verða örðugust, því að hér hlaut að
draga til verulegra útgjalda úr konungssjóði. En nú var
hamrað, meðan járnið var heitt. Til þess að skipa fjármál-
unum í það horf, sem vera bar, þurfti að skrifa fjármála-
stjórninni, og var það gert sama dag, 21. maí, sem kan-
sellíið hafði lokið við álit sitt; en að fengnu svari þaðan,
var 30. maí samin tillaga til konungsúrskurðar, er síðan
gekk 6. n. m. Samkv. tillögum kansellísins áttu laun dóms-
forseta að vera 700 rdl. á ári, 1. meðdómanda 500 og 2.
meðdómanda 400, en með konungsúrskurðinum voru laun-
in ákveðin 900, 700 og 500 rdl. Hefir hér sýnilega sá verið
að verki, sem borið hefir kansellíherrana ráðum hjá kon-
ungsvaldinu. Þá var og í úrskurðinum tekin að fullu til