Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 371
Skýrslur og reikningar
Bókmenntafélagsins árið 1929.
Bókaútgáfa.
Árið 1929 gaf félagið út þessar fjórar bækur og fengu þær þeir
félagsmenn, er greiddu félaginu lögákveðið árstillag, 10 krónur:
Skírnir, 103. árgangur..........................kr. 12,00
Safn til sögu íslands, V. 7.....................— 2,75
Islenzkt fornbréfasafn, XII, 6..................— 6,00
Annálar 1400-1800, II. 3........................- 6,00
Samtals . . . kr. 26,75
Aðalfundur 1930.
Árið 1930, þriðjudaginn 17. júní, kl. 9 að kvöldi, var haldinn
aðalfundur í Bókmenntafélaginu. Fór fundarhaldið fram í kaupþings-
salnum i húsi Eimskipafélagsins og hafði fundurinn áður verið aug-
lýstur og boðaður samkvæmt félagslögunum.
Forseti félagsins setti fundinn og stakk upp á fundarstjóra, herra
Einari H. Kvaran, rithöfundi. Var hann kjörinn með almennu
lófataki.
I. Því næst minntist forseti látinna félagsmanna, en þeir voru
þessir:
Bjarni Simonarson, prófastur, Brjánslæk,
Boer, R. C., prófessor, Amsterdam,
Briem, Eirikur, prófessor, Reykjavík,
Briem, Valdemar, vigslubiskup, Stóra-Núpi,
Böggild, J. E., aðalræðismaður, Montreal,
Guðjón Jónsson, kaupmaður, Akranesi,
Guðni Björnsson, útvegsbóndi, Búðum,