Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 94
88
Alþingi árið 1000.
[Skírnir
menn úr landi róið út til þeirra og spurt af þeim tíðindi.
Og var þetta sama dag, er þeir komu til Vestmannaeyja,
og Brennu-Flosi reið yfir Arnarstakksheiði með lið sitt
til Alþingis, því að hann hafði spurnir af för þeirra og
fregnir af Noregi. Nú átti Flosi, sem var goðorðsmaður, að
vera kominn til þings fimmtudagskveldið í 11. viku sum-
ars fyrir sólarlag. Það hefði hann elcki getað, ef þetta hefði
verið á miðvikudaginn í 10. viku sumars, jafnvel þótt
snemma morguns hefði verið, og þá því síður, ef það hefði
verið á fimmtudaginn. Ef þetta hefði verið á þriðjudags-
morgun í 10. viku sumars, þá hefði Flosi getað verið kom-
inn á Þingvöll á fimmtudagskveldið í 11. viku, eins og lög
standa til, og hefur þó orðið að fara fullum dagleiðum.
Eftir þessu hefði þeir Gizur og Hjalti átt að hafa tekið
Vestmannaeyjar á þriðjudaginn í 10. viku sumars, er þá
bar á 18. júní. Nú segir, að þeir Gizur og Hjalti hafi dval-
izt 2 nætur í Vestmannaeyjum. Þeir mörkuðu þar fyrir
kirkjugrunni og sungu þar messu. Á fimmtudagsmorguninn
20. júni hafa þeir þá látið frá Vestmannaeyjum og komu
til lands »þann dag, er menn riðu til þings«. Almenningur
hefir ekki hirt að koma á Þingvöll fyrr en föstudaginn
fyrra í þingi, og hefir því ætlað sér allt að 2 dögum til
þingfarar. Þeir Gizur geta hafa tekið land í Út-Landeyjum
til þess að stytta sér nokkuð leið. í Landeyjum segir, að
engir hafi viljað eða þorað fyrir riki Runólfs goða að Ijá
þeim hesta, og hafi þeir þvi orðið að i'ara gangandi út
yfir Rangá ytri og þar til er þeir komu að Háfi. Þar bjó
Skeggi Ásgautsson, er var annar maður frá Þorkeli Þjálfa,.
er land nam í Holtum, og þriðji maður frá Áskatli hnokan,.
er þar nam og land. Þorvaldur son Skeggja þessa var
kvæntur Koltorfu systur Hjalta Skeggjasonar. Þar fengu
þeir hesta. Héldu þeir nú sem leið liggur út sveitir, og
segir eigi af ferð þeirra fyrr en þeir komu í LaugardaL
Þar fengu þeir Hjalta til þess að verða eftir, því að hann
var sekur fjörbaugsmaður og mátti þvi eigi riða á helgað
þing. Auk þess hafa þeir Gizur talið óheppilegt að reita.
fjandmenn Hjalta til reiði með þvi, að hann væri á þingi,.