Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 322
316
Alþingi árið 1903.
[Skírnir
settum innlendum manni með ábyrgð fyrir innlendum dóm-
stóli. Tillagan var felld. Þá sáu Heimastjórnarmenn engin
önnur ráð en að senda mann af sinni hálfu, Hannes Haf-
stein, til þess að túlka málið fyrir nýju stjórninni.og bera
fram kröfur flokksins. Aftur á móti sendu Framsóknarmenn
í Efri deild ávarp til konungs; var í því tekið fram, að þótt
telja mætti þær samþykktu breytingar mikilvægar umbæt-
ur á stjórnarfari landsins, sé þó ekki fyllilega viðunandi
fyrirkomulag á því fengið fyrr en æðsta stjórn sérmálanna
sé búsett í landinu sjálfu. Talsmann af sinni hendi þurfti
flokkurinn ekki að senda, því að dr. Valtýr var búsettur í
Kaupmannahöfn.
Danska stjórnin veitti sendimanni góða áheyrn, en lét:
auðvitað ekkert uppi, því að málið kom þá um leið í henn-
ar hendur. En er svarið kom, varð það bert, að traust það>
sem ýmsir þingmenn höfðu borið til vinstristjórnarinnar,
varð ekki alveg til skammar, og að sú stjórn leit nokkuð
öðrum augum á samband landanna en hægristjórnirnar
áður höfðu gert.
í boðskap konungs til íslendinga 10. janúar 1902 er
því lýst yfir, að hann geti mjög vel failizt á það skipulag,
sem farið hefði verið fram á í frumvarpinu frá 1901. »En
með því að svo er til ætlazt í téðu frumvarpi, að stjórnar-
ráð Vort fyrir ísland haldi áfram að vera í aðsetursstað
Vorum, en Oss hins vegar er kunnugt um það, bæði af
því, er stendur í ávarpinu (þ. e. frá Ed.) og af því, er
annarstaðar hefir komið fiam opinberlega, að það er ósk
margra Vorra kæru og trúu íslendinga, að stjórnarráðið
verði flutt til Reykjavíkur, þá höfum Vér til þess að þetta
mikilvæga atriði geti orðið hugleitt ítarlega af Alþingú
ályktað að leggja ennfremur fyrir þing það, er í hönd fer,.
frumvarp, er auk hinna annarra breytingarákvæða fyrr-
greinds frumvarps, fer fram á, að ráðgjafi Vor fyrir ísland
skuli ekki aðeins kunna íslenzka tungu og eiga sæti á Al-
þingi, heldur og að stjórnarráð Vort fyrir ísland skuli hafa
aðsetur í Reykjavík.«
Það var því alveg sett Alþingi í sjálfsvald, hvort þaö-