Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 96
Alþingi árið 1000.
[Skirnir
90
mönnum Þingvöll? Til þess liggja auðvitað margar orsakir.
Ýmsir óskírðra manna hafa verið á báðum áttum. Úr því
að slíkir úrvalsmenn og Hallur af Síðu og Gizur hvíti og
sennilega líka Þóroddur í Ölfusi Eyvindarson, faðir Skafta,
slíkir spekingar og Njáll og Gestur Oddleifsson höfðu lát-
ið skírast, þá hafa ýmsir hugsandi menn hlotið að líta svo
á, að vert væri að kynnast betur kenningum kristinnar
trúar. Meðal þessara manna er Snorri goði líklegur til að
hafa verið. Og ekki er það ósennilegt, að Snorri hafi hér
ætlað að skakka leikinn, ef til orustu kæmi milli heiðna
og kristna flokksins, eins og hann gerði að lokum á Brennu-
þinginu 12 árum síðar. Og margir góðgjarnir menn hafa
séð, þótt heiðnir væri, að hér var stefnt i mjög óvænt
efni, ef þingheimur, eða mikill hluti hans, skyldi berjast.
Slíkt má til geta um Þorgeir Ljósvetningagoða, Brennu-
Flosa o. fl. Hefir hér farið, eins og þegar Hafliði Másson
ætlaði 120 árum síðar að verja Þorgilsi Oddasyni þing-
helgina, að góðir menn og friðsamir gengu á milli. Auk
þess hafa ýmsir heiðinna manna átt frændur og vini i
flokki hinna kristnu, og hefir þeim líka hrosið hugur við,
að þeir dræpi hver annan niður. Loks var fregn komin til
þings af tiltektum Ólafs konungs við íslenzka menn í Nor-
egi. Brennu-Flosi, sem var tengdasonur Síðu-Halls, átti
bróður sinn í höndum Ólafs konungs. Guðmundur ríki átti
þar son sinn og Ólafur pá Höskuldsson líka. Og Runólfur
goði Úlfsson átti líka son sinn á valdi konungs. Þetta hefir
Brennu-Flosi flutt þeim og þar með, að öllum þessum fjór-
um ungu og mannvænlegu höfðingjasonum var heitið afar-
kostum, ef menn skipaðist hér illa við erindi þeirra Gizurar
og Hjalta. Og svo mátti líka búast við algerðu farbanni
milli íslands og Noregs, ef erindi þeirra konungs greiddist
illa. Er sennilegt, að allt þetta hafi hjálpast að því, að sefa
svo heiðna menn, að þeir hafi horfið frá því að verja hin-
um kristnu þinghelgina. En hvernig sem á því hefir staðið,
þá varð ekki af vopnaskiftum. Kristni flokkurinn náði að
komast óhindiað í þinghelgi. Þetta hefir líklega verið laug-
ardaginn 22. júní, síðara hluta dags. Þenna þingdag, laugar-