Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 265
Skirnir] Alþingi árin 1798—1800. 259
greina tillaga nefndarinnar, sem kansellíið hafði fallizt á,
um smíð húss handa dómstólnum, þótt ekki yrðu framkvæmd-
irnar eins hraðar og til var ætlazt. Þá var og samkvæmt
tillögu nefndar og kansellís veitt fé, til þess að endurskoða
lögbókarverkið og halda því áfram, og varalögmanni Stef-
áni Stephensen falinn starfinn.
Eins og segir í konungsúrskurðinum, var dómsmála-
ráðunaut ríkisins, sem þá var Norðmaðurinn Chr. Colbjörn-
sen, falið að semja tilskipun um landsyfirdóminn, er kæmi
í stað lögþinganna og yfirréttarins. Var hann óefað allra
manna færastur til þess. En í rauninni var þó ekki um að
ræða nema endurskoðun á frumvarpi nefndarinnar. Er tilsk.
11. júlí 1800 algerlega samhljóða frumvarpi hans, nema
felld var niður ein grein í fruinvarpinu, um birtingu og
þýðingu laga og tilskipana, en efni þeirrar greinar var
siðan tekið upp í kansellíbréf til stiftamtmanns, 2. ág. 1800.
í tilskipuninni er efni 1.—3. gr. nefndarfrumvarpsins
tekið upp í 1. gr. En þar sem tilsk. var ekki gefin út fyrr
en i júlí, var ekki um það að ræða, að hún kæmi til fram-
kvæmda fyrr en á næsta ári. í nefndarfrumvarpinu voru og
fyllri ákvæði um húsnæði dómstólsins en í tilsk., og hún
kvað svo á, að dómurinn kæmi oftar saman en nefndin taldi
nauðsynlegt, sbr. 3. gr. hennar. Fororð tilskipunarinnar var
ekki í frumvarpinu, en kapítula skifting og fyrirsögn þeirra
ér hin sama í báðum, og að eini til er ekkert aðalatriði í
tilskipuninni, sem ekki var í frumvarpi nefndarinnar, svo
að höfuðstarf Colbjörnsens var eiginlega að fá frumvarpinu
sem beztan búning.
Samkvæmt orðum 1. gr. tilskipunarinnar var raunar
landsyfirdómurinn ekki stofnaður í stað Alþingis, heldur í
stað hinna fyrri yfirdómstóla, en tilsk. kvað aðeins svo á,
að Alþingi skyldi einnig afnumið. í tilsk. eru þó ákvæði,
er lúta að öðrum efnum en dómsmálum, svo sem ákvæði
5- gr., um innheimtu lögmannstollsins, og 12. gr., um þing-
lestur og þinglýsingar allskonar, þar á meðal Iaga. Þessi
störf eru þau eiginlegu Alþingisstörf, sem landsyfirdómur-
inn tók við. Þótt þessum störfum væri siðar létt af lands-
17*