Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 292
286
Alþingi árið 1845.
[Skirnir
málum þá og lengi síðan. En árangurinn varð ekki að sinni
annar en sá, að á Alþingi 1847, 2 árum síðar, var birt það
svar við bænarskránni, að svo miklar rannsóknir þurfi við
til þessa máls, að stjórnin hafi engu frumvarpi getað kom-
ið um það til Alþingis í það skifti, en öllu góðu er lofað
um að hraða málinu. Með svipuðum hætti hafa ýms fleiri
r.ytjamál landsins verið tafin, meðan því var stjórnað frá
Kaupmannahöfn. Allt af var viðbáran þessi, að rannsaka
þyrfti og rannsaka, en mestan »rannsóknartimann« hvíldu
málin oftast ósnert í skjalapökkum Kancellís og Rentu-
kammers. Verzlunarmálið lá á döfinni til 1854, sem kunn-
ugt er. Þá loks var verzlunin gefin frjáls að kalla með
lögum 15. apríl, sem menn vita.
2. Meðal annara alþjóðarmála er hér ástæða til þess
að nefna skólamálið. Þegar hér er komið sögu, þá var
latínuskólanum nokkurn veginn ráðstafað. Veglegt hús,
miðað við húsagerð þeirra tíma hér á landi, hafði verið
reist handa honum og skólaskipun átti að verða eftir því,
sem þá þótti bezt vera í Danmörku. En þeir, sem stór-
hugaðastir og metnaðarfyllstir voru fyrir þjóð sina, vildu
gera fleiri breytingar og bætur á menntamálum landsins.
Jón Sigurðsson bar þegar upp á þessu þingi bænarskrá ís-
lenzkra stúdenta og kandidata í Kaupmannahöfn, þar sem
farið var fram á það, að settur yrði á stofn þjóðskóli á
íslandi, er veitti hverri stétt þá menntun, sem hún þyrfti.
Því hugðust þeir, eftir því, sem Jón Sigurðsson flutti mál-
ið á Alþingi, að láta kenna íslenzkum embættismannaefn-
um guðfræði, Iæknisfræði og lögfræði, og svo íslenzka
tungu og islenzk fræði i þjóðskólanum. Ennfremur hugsuðu
þeir sér, að þar gæti þeir fengið menntun, sem eigi ætl-
uðu sér að verða embættismenn, svo sem iðnaðarmenn og
sjómenn. En þar til þjóðskólinn kæmist á, vildu þeir setja
upp sérstaka skóla handa prestum, læknum og lögfræð-
ingum. Konungsfulltrúi og forseti (B. Th.) töldu mál þetta
ótímabært. Nefnd 5 manna var þó sett í það, þrátt fyrir
mótbárur konungsfulltrúa, þeir Þórður Sveinbjörnsson, Jón
Sigurðsson, Helgi Guðmundsson (Thordersen), Þórður Jón-