Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 99
Skírnir)
Alþingi árið 1000.
93
fylgdu heiðnir eiðar. Og heiðnir menn kveðast ekki munu
þola kristna menn í lögum með sér. Afleiðing þessa hefði
orðið sú, að heiðnir menn og kristnir hefði setið í land-
inu hverir innan um aðra og ef til vill gert hverir öðrum
búsifjar á víxl, eins og við bar fyrir norðan land á dögum
þeirra Þorvalds Koðránssonar og Friðreks biskups. Kristnu
mennirnir myndi hafa reist sér kirkjur eftir mætti og lagt
til þeirra fé. Þeir hefði stofnað til þinga fyrir sig og háð
þau með kristnum eiðum. í landinu hefði komið upp tvö
óstaðbundin ríki. í héruðum, þar sem heiðnir menn voru
fleiri, er hætt við, að kristnum mönnum hefði orðið illbýlt.
Og þar sem kristnir menn voru fleiri, þar myndi þeir hafa
leikið heiðna menn grátt. En af þessu öllu hefði niðurstað-
an orðið sú, að land allt hefði bráðlega logað i ófriði, þar
til önnur hvor trúin hefði útrýmt hinni.
Þrátt fyrir þetta virðist mönnum í fyrstu, í mesta hit-
anum að lögbergi, hafa verið alvara með það að slíta rik-
isböndin. Kristnir menn hafa nú komið saman og ráðið
ráðum sinum. Þeir fóru nú að hugsa um það, hvernig þeir
ætti að skipa málum sínum. Að því höfðu þeir fyrirmynd:
Stjórnarskipun íslenzka ríkisins með breytingum á öllu því,
er guðsdýrkun varðaði og öðru því, er eigi mátti samríma
kristnum kenningum eða siðum. Þeir hafa því vitanlega
hugsað sér að hafa allsherjarþing, goðorðaskipun og dóm-
stóla, vorþing og lögsögumann. Og svo eru þeir staðráðnir
í þessu, að þeir velja sér þegar lögsögumann til þess að
segja upp lög þau, er þeir ætla að láta gilda í hinu nýja
kristna ríki sinu. Heiðnu mennirnir þurftu þar á móti litlu
að breyta hjá sér að formi til, þótt kristnir menn skildist
v>ð þá, að minnsta kosti eigi meðan kristnu mennirnir voru
svo fáir. Lögrétta hefði eigi orðið fullskipuð þegar, vegna
þess, að nokkura goða hefði vantað, en þó ályktunarfær.
Og þeir þurftu eigi að velja sér lögsögumann, meðan sá,
er var, kastaði ekki trú þeirra. Kristna rikið var frumbýl-
ingurinn, en heiðna ríkið stóð á gömlum merg og mátti
halda áfram tilvist sinni með svipuðum hætti og verið
hafði.