Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 63
Skirnir]
Alþingi árið 955.
57
tveim misserum, því að það eru auðsæ vandkvæði á því,
að koma skilaboðum að vorinu til allra landsmanna um
það, hvenær Alþingi skyldi háð það sumarið. Menn urðu
að hafa slíkt ákveðið fyrirfram, og þá var nauðsynlegt, að
tímatalið væri í lagi. Sakir þessa verður það eðlileg til-
gáta, að Úlfljótur hafi sett það ákvæði í fyrstu íslenzku
lögin, að tvö misseri skyldu vera 364 dagar. Að réttu tali
eru 365,2422 dagar í ári; tvö misseri voru þess vegna 1,2422
eða nálega lh'4 degi of skömm; á 4 árum verður munur-
inn 5 dagar, en á 100 árum 124 dagar eða rúmir 4 mán-
uðir. Það er ósennilegt, að slikt tímabil hafi getað staðizt
i meira en svo sem 30 ár, og það kemur mæta vel heim
við það, að Úlfljótur hafi innleitt það hér fyrstur, en Þor-
steinn surtur endurbætt það 25—30 árum síðar með sum-
araukanum.
Það er glöggt, að í hinu fyrsta misseristali hefir mesta
áherzlan verið lögð á viknatalið. Suinarið varð ávallt að
byrja sama vikudaginn, þórsdaginn, fimmtudaginn, og því
hefir staðið á heilum vikum í tveim misserum. Nú verður
varla um það sagt, hvort Úlíljótur eða þeir menn, sem
réðu því, að tvö misseri skyldi teljast 52 vikur, hafa fund-
ið þessa tímalengd sjálfir með athugun eða stuðzt þar við
tímatal kristinna manna að einhverju leyti. Á þeim tímum
höfðu forfeður vorir þó nokkur kynni við kristna menn„
en ekki ber misseristalið þess sýnilegar menjar. Ari fróði
minnist á þrítugnátta mánuði í þessu sambandi, svo að
þeir munu hafa þekkzt í hinu fyrsta misseristali, og senni-
lega á svipaðan hátt og siðar mest verið notaðir að vetr-
inum, en alls ekki um hásumarið; þá hefir viknatalið ver-
ið notað. Óvíst, að menn hali átt nöfn yfir alla þessa 12
mánuði, þótt mánaðanöfnin að vetrinum hafi verið kunn.
Og þessir 4 dagar umfram 12 mánuði hafa enga sérstöðu
haft í timatalinu. Á síðari tímum hafa þeir verið nefndir
aukanætur, og er það látið standa í almanakinu, en ekki
hefi ég hitt á það í fornum rímbókum. Þeir hafa líklegast
ekkert nafn haft, með því að sumartíminn, þar sem þeir
eru, var talinn í vikum en ekki í mánuðum.