Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 252
.246
Alþingi árin 1798—1800.
[Skírnir
ingskostnaður, ef húsið sé byggt í Reykjavík, enda sé hægt
að kaupa efni á staðnum, og kaup smiða muni verða hálfu
minna í Reykjavik. Þannig skýrir stiftamtmaður kostnaðar-
hlið málsins.
Þá snýr hann sér að því að lýsa, hve hagfelldara það
sé fyrir þingsókn manna að flytja þingstaðinn, því að enn
þá er ekki um annað að ræða en aðeins að flytja hann,
hvorki að leggja Alþingi niður né breyta réttarfarinu. Stift-
amtmaður kveður alla skynsama menn og réttsýna hér-
lendis óska þess, að þingstaðurinn sé fluttur til Reykja-
víkur, enda hnígi mörg rök undir það, og þar á meðal
það, er nú skal greina. Þeir stiftamtmaður, biskup, landfó-
geti, sýslumaðurinn i Gullbringu- og Kjósarsýslu, rektor
latínuskólans í Reykjavík, sem sé ritari sýnódalréttarins,
losni við ferðakostnað til Öxarár, þar sem þeir allir séu
búsettir annaðhvort fast við Reykjavík eða í sjálfum bæn-
um; flestir lögréttumanna eigi og heima í Gullbringu- og
Kjósarsýslum. Af almenningi í þessum sýslum og Árnes-
sýslu verði þá einnig létt þeirri kvöð, sem á honum hafi
hvílt, að flytja stiftamtmann og landfógeta endurgjalds-
laust fram og aftur til þings við Öxará. Þá telur stiftamt-
maður það rík meðmæli með flutningi hússins, eins og
hann orðar það, að Reykvíkingar, er málum hefðu að sinna
við yfirréttinn, losnuðu við ferðalag til Öxarár, og kæmi
það sér sérstaklega vel fyrir kaupmenn að þurfa ekki mála-
ferla vegna að vanrækja verzlun sína eða aðra iðn. Og
enn getur hann þess, að báðir lögmenn eigi ekki lengri
leið til Reykjavíkur en á hinn staðinn.
Þá víkur stiftamtmaður að þvi, hvernig málið horfi
við fyrir menn úr öðrum landshlutum, og segir, að sýslu-
mönnum og málsaðiljum úr öllum suðursýslunum, þar með
talin Suður-Múlasýsla, verði leiðin styttri til Reykjavíkur en
til Öxarár; svo eigi menn og úr Vesturamtinu allt eins
stutt til Reykjavíkur, þegar þeir leggi leið sína gegnum
Borgarfjarðarsýslu um Akranes. Úr Norðuramtinu eigi menn
hálfri dagleið — þó ekki yfir 4 mílur — lengri leið til
Reykjavíkur en til Öxarár* en þaðan sæki menn mjög sjald-