Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 190
184
Alþingi árið 1541.
(Skirnir
það, að láta dóm ganga yfir Gizuri, liklega víkja honum
frá eða hver veit hvað. Hafði Ögmundur nokkru áður boð-
ið Gizuri með ótrúlegri sáttfýsi, að gera upp skuldaskifti
öll á Torfastöðum um vorið, J) en Gizur ekki getað þegið
sakir annríkis.1 2) En nú má sjá, að þetta boð hefir líklega
verið flærð ein, gerð í þeim tilgangi, að leiða athyglina frá
þessum samblæstri, ef kvisast skyldi um einhvern fund á
Torfastöðum, og til þess að geta boðað þar saman fjölda
klerka í öðrum erindagjörðum.3)
En þetta ráðabrugg Ögmundar fékk skjótan endi. Bréf-
ið komst einhvern veginn í hendur Gizuri sjálfum.4) Hefir
honum mátt bregða heldur en ekki í brún, því að ekki
þurfti hann að efa, hvernig dómurinn myndi hljóða, sem
hann fengi. Brá hann því skjótt við, ritaði Erlendi lög-
manni Þorvarðssyni og hét á hann til liðsinnis. Segir hann,
að Ögmundur hafi látið blíðlega í vetur, en þetta hafi þá
búið undir. »Trúi eg biskup Augmundi vel til vilja vera,
þó að ykist titillinn hans, biskups Jóns, svo sem skrifaðist
Schalholtensis jafnvel sem Holensis.« Skorar hann svo á
Erlend að vera með nokkra menn með sér í Skálholti þá
daga, sem þingið standi yfir á Torfastöðum, og kveðst
muni stefna að sér mönnum, sem hann treysti.5 6) Höfum
vér eitt af þeim bréfum. fi)
Þingið á Torfastöðum fórst náttúrlega fyrir, úr því að
samsærið komst upp, enda vitum vér ekkert um það, hvort
Jón biskup myndi hafa viljað vera með í þessum ráðum.
En hvaó sem um það er, þá hlaut nú teningunum að vera
kastað 1 huga Gizurar. Annarhvor þeirra Ögmundar varð
að víkja. — Stefnir hann Ögmundi stundarstefnu til Þing'
valla fyrir almenna prestastefnu 28. júní næstkomandi, til
þess að þola dóm »fyrir þá sök, að þú hefir diktað og
1) DI. X., 578.
2) DI. X., 599.
3) Sbr. bréfið DI. X., 578 (12 kennimenn).
4) Það er hvergi til nú, nema i bréfabók hans!
5) DI. X., 608.
6) DI. X., 610.