Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 274
268
Alþingi árið 1845.
[Skírnir
þingi. Nefndin hallaðist helzt að því, að konungur hefði
nefnu þessara fulltrúa á hendi, eins og verið hafði.
Ekki þorði nefndin í heild sinni að bera fiam ósk eða
tillögur um þing á íslandi, með því að konungur hefði lýst
yfir því, að breytinga á því skipulagi, sem ákveðið hafði
verið á ráðgjafarþingunum, væri engra að vænta. En Þórð-
ur Sveinbjörnsson segir í æfisögu sinni (Sögufélagsrit XVII.,
bls. 83—84), að einstakir nefndarmenn hafi afráðið að semja
ávarp til konungs með tilmælum um það, að ísland yrði
leyst undan þingsókn til Hróarskeldu og að þing yrði
stofnað á íslandi. Þrjár bænarskrár voru gerðar. Þórður og
Páll Melsted söfnuðu undirskriftum undir eina, sunnan
lands, Bjarni Thorarensen og Björn Blöndal undir aðra,
fyrir norðan land, og komu báðar fram, en sú þriðja var
fengin Bjarna amtmanni Thorsteinsson til fyrirgreiðslu um
Vestfirðingafjórðung. Kom hún ekki fram. Segir Þórður, að
Bjarni hafi stungið henni »undir koddann«.
Nú gerðust góð tíðindi í Danmörku. Friðrik 6. andað-
ist 3. des. 1839, en konungdóm tók Kristján 8., gáfaður
maður og frjálslyndur. Hann skildi það, að íslandi var alls-
kostar ófullnægjandi þingsókn til Hróarskeldu, en lét þó
fyrst um sinn standa við svo búið. En jafnframt bauð hann
í úrskurði 20. maí 1840, að embættismannanefndin skyldi
spurð að því á næsta fundi sínum, sumarið 1841, hvort
eigi muni rétt að setja á stofn sérstakt ráðgjafarþing á ís-
landi, skipað hæfilega mörgum þjóðkjörnum þingmönnum,
auk nokkurra konungkjörinna manna, og um önnur þau
efni, er þingið vörðuðu, svo sem þingkostnað o. s. frv.
Sérstaklega var vakin athygli á því, hvort eigi skyldi nefna
þingið Alþingi, hvort eigi mundi rétt að halda það á Þing-
velli við Öxará og hvort eigi skyldi hafa það skipað sem
líkast hinu forna Alþingi.
Embættismannanefndin kom saman öðru sinni sumarið
1841, 5. júlí. Stiftamtmaður var nú Hoppe, en að öðru leyti
voru fundarmenn hinir sömu sem 1839. Var Alþingismálið
tekið til meðferðar þegar á fyrsta fundinum. Var það sett
i aukanefnd, sem þeir amtmennirnir Bjarni Thorarensen og