Búnaðarrit - 01.01.1914, Page 10
6
BÚNAÐARRIT
gerlarnir eru alheimsborgarar og sækja alstaðar í þann
jarðveg, er þeir þróast bezt í, en það er mjólkin.
VI.
S ý r a.
Viðsvegar um lönd búa menn til mysuvín, og ís-
lenzka sýran er iíka einskonar mysuvín, þó af verra
tægi, sökum þess, hve illa er farið með hana. Mér heflr
tekist að búa til ágætis drykk úr mysu, með því að sá
í hana mjólkursykursveppi, er eg hefi hreinræktað úr
íslenzku skyri. Drykkurinn líkist mjög hinu sýrða
hvítöli Þjóðverja, sem er uppáhaldsdrykkur þeirra. í
sýrunni okkar er allfjölbreyttur gróður, meðan hún er
ekki mjög gömul. í 2 ára gamalli sýru er 0,40°/o af
vínanda, en í ^/2 árs sýru mun meira. Vínandinn
minkar með aldrinum sökum þess, að edikssúrgerlarnir
breyta honum í edikssýru og önnur efni. Mjólkursýran
minkar einnig af völdum smávera, og sökum þessara
efnabrigða er mjög gömul sýra fremur óholl.
VII.
íslenzkt skyr.
Svo eg víki að islenzka skyrinu, þá er óvíða í öðr-
um löndum búið til skyr, er líkist því nákvæmlega. —
írar og Frakkar gera einskonar súrost, sem líkist einna
mest islenzku skyri. Þessi súrostur er búinn t.il á lík-
an hátt og sjálfgert skyr hér á landi og er ýmist borð-
aður með útáláti eða þurkaður í ostamótum og hafður
ofan á brauð. Það er ongin fuiða þó að írar geri skyr
á svipaðan hátt og vér íslendingar, þar sem kyn Norð-
manna og íra blandaðist svo mjög á vikingaöldinni (sbr.
ísl. þjóðerni eftir J. J.). írska súrostagerðiu er þó lítil
í samanburði við íslenzku skyrgerðina, en hinsvegar búa
Ungverjar til allmikið af skyri, sem kvað vera eins og
íslenzkt skyr, ef rétt er sagt frá í tímaritinu „Samtiden",
sem eg hefl áður vitnað til. — Á Finnlandi er lika gert