Búnaðarrit - 01.01.1914, Blaðsíða 23
BÚNAÐARRIT
19
1. rannsókn 3,5%, 2. ranns. 4,2%, 3. ranns. 5,1%.
1.--------2,9%, 2. — ' 3,0%, 3. — 4,0%.
Þessar tölur og aðrar þvílíkar eru svo ótrúlegar,
og eg hefl ekki þorað að byggja á þeim meðaltöl.
Af þessu leiðir, að meðalfeiti er reiknuð af færri
kúm en meðalnythæð, og að eg hefi slept dálk-
inum yflr tölu „fullmjólkandi" kúa.
4. Að taka enga þá kú með, sem hefir orðið veik á
árinu.
Af þessu geta menn þá séð, hvaða kýr eru teknar
í meðaltölin, og svo bygt á þeim eftir vild.
II.
Skýrsla I.
Þessi skýrsla þarf ekki mikillar útskýringar við. Á
þeim 6 árum, er hún nær yfir, hafa verið stofnuð 22
nautgripafélög. Og síðasta árið eru 11 af þeim starfandi.
Hin hafa þá hætt. Eitt einstakt (Gnúpverja) sameinaðist
þó öðru, svo að það er ekki fullur helmingur, sem hefir
sofnað svefninum væra á fyrstu 6 árunum. En það eru
:%2 hlutar. Og félög þau, sem fæðst hafa á Austfjörð-
um, hafa kafnað í fæðingunni. Og af fyrstu 7 félögun-
um, sem stofnuð eru 1904, lifa að eins 4 árið 1910.
Athugi menn annars vöxt einstakra fólaga, sóst, að
hann er skrykkjóttur. Ber það vott um það, að enn
eru fólögin á þroskaskeiði; þau eru ekki enn búin að
uá þeirri festu, sem þau þurfa að hafa til þess að
geta vænst góðs árangurs. Annars vill það brenna við
margan félagsskap á landi voru, að menn eru skjótir
til í fyrstu, en vantar svo alla festu, þol og þrautseigju,
er á hólminn kemur. Alment munu flestir gera sér
bjartar og skjótar vonir um árangur af fólagsskapnum.
Jui um nautgripafólagsskapinn er það svo, fremur en
um flestan annan félagsskap, að engin von er til þess,
að góður árangur sjáist fyrri en eftir margra ára starf.
2*