Búnaðarrit - 01.01.1914, Side 53
BÚNAÐARRIT
49
Á Eeylchólum voru því 1446 150 nautgripir eða
hálft annað hundrað.
154 kúgildi átti Guðmundur á jörðum, sem voru
bygðar frá Reykhólum.
Annaö bú Guðmundar var í Kallaðarnesi í Bjarnar-
flrði. Þar voru 25 kýr á búi, 7 uxar tvævetrir og eldri,
og 2 þeirra sjö vetra. Á þeim 37 jörðum, sem voru
bygðar frá Kallaðarnesi, voru 96 kúgildi, sem Guð-
mundur átti.
Þriðja hú Guðmundar var að Núpi í Dýraflrði.
Þar voru 42 kýr, 18 naut veturgömul, 8 naut tvævetur
með kvígum og 12 kálfar. 32 jarðir voru bygðar frá
Núpnum eða af bónda þar, og voru á þeim 136 kúgíldi,
sem Guðmundur átti.
Fjórða bú Guðmundar Arasonar var á Brjánslæk á
Barðaströnd. Þar voru 23 kýr, 12 naut veturgömul, 4
tvævetur og 8 kálfar. Auk þessa voru þar 6 uxar þre-
vetrir og eldri. 51 kúgildi átti Guðmundur á þeim 13
jörðum, er voru bygðar frá Brjánslæk.
Fimta bi'iið var í Saurbæ á Rauðasandi. Þar voru
45 kýr, 18 uxar tvævetrir, 20 uxar þrevetrir og eldri,
og er sagt, að þeir hafl gengið í Yatnsdal inn frá Læk,
16 naut veturgömul og 25 kálfar. Af þeim 124 naut-
gripum, sem voru í Saurbæ, gengu 20 gömul naut úti.
17 jarðir voru bygðar frá Saurbæ, og voru á þeim 68
kúgildi, sem Guðmundur átti. .Á einni jörðinni voru þó
engin.
Sjötta og síðasta bú Guðmundar var á Pelli í
Kollaflrði. Þar voru 12 kýr, 4 naut veturgömul, 3 tvæ-
vetur og tveir kálfar. Undir Fell lágu 5 jarðir til bygg-
ingar, og átti Guðmundur á þeim 17 kúgildi.
Af þessu sjást kúabú á sex stórbúum 1446. Og
þau bera með sór mikinn kúafjölda og geldneyta.
Enn má nefna, að Reynistaðarklaustur átti sama
ár 206 nautgripi heima á Reynistað, og sóra Sigmundur
4