Búnaðarrit - 01.01.1914, Page 60
56
BÚNAÐARRIT
manna gerðu á kúm þeirra. Þetta ákvæði var gott og
þarft, og þess væri þörf, að svipað ákvæði væri til nú,
svo að þeir fengju að borga öðrum skaðabætur, er láta
tarfatudda ganga lausa heima og kelfa kýr og kvígur
annara manna þeim til stórtjóns.
Árið 1185 átti Staðarhraunskirkja beit öllum sínum
nautum í Langavatnsdal. Sýnir það, að þau hafa verið
rekin þangað að sumrinu.1)
Árið 1315 átti Garðakirkja á Akranesi nautaupp-
rekstur í Svanga land í Skorradal.2)
Árið 1358 átti Bæjarkirkja í Borgarflrði nautaupp-
rekstur á Flókadalsheiði.3)
Árið 1461 átti Ufsakirkja í Eyjafirði geldfjár rekstur
állan fyrir utan svín út frá „Torfuá".4)
Eggert Ólafsson talar um naut á afréttum bæði í
Árness og Rangárvalia sýslum og Gullbringu og Kjósar-
sýslu.5) Og hann segir, að það hafl verið siður áður
fyrri, að reka öll naut á afrétt, en hann sé nú sum-
staðar lagður niður, og hvergi eins mörg naut á afrétt-
um nú sem áður.
Þessi siður, að reka nautin (uxana) á afrétt á
sumrin, hefir þá verið almennur alt fram á okkar daga,
og enn þekkjast þess dæmi, að naut séu rekin á afrétt,
en nú eru ílokkarnir, sem Eggert Ólafsson talar um,
orðnir 3—5—10 naut eða ekkert. En fyrir 30—40 ár-
um voru þó mun fleiri naut á afréttunum.
En í stað þess að reka nautin til afréttar, til þess
að verja kýrnar fyrir þeim, eru menn nú farnir að
koma upp samgirðingum og geyrna þau í. Eru þær
styrktar af Búnaðarfélagi íslands og gefast prýðilega,
þar sem eg þekki.
1) Fornbréfasafn I. bindi, 278. br., bls. 67.
2) Fornbréiasafn I. bindi, 113. br., bls. 418.
3) Fornbréfasafn III. bindi, 88. br., bls. 124.
4) Fornbréfasafn Y. bindi, 231. br., bls. 251.
5) Ferðasaga lians bls. 52. og 977.