Búnaðarrit - 01.01.1914, Page 125
BÚNAÐARRIT
121
fremur vel við áveitu. Með ekki miklum kostnaði er
auðið að ná ánni, sem kemur þar ofan dalinn, á allar
útengjarnar, og mundi það bæta þær, einkum ef flóð-
garðar væru gerðir til þess að halda vatninu inni á þeim
yfir áveitutímann.
Enn má geta þess, að eg gerði mælingu í Vall-
hólminum í Skagafirði til áveitu á engjar nokkurra jarða
þar í Hólminum. Reyndist auðvelt að ná vatninu og
ekki kostnaðarsamt, og var verkið unnið skömmu síðar.
Auk þessa hefl eg gert minni háttar mælingar og
leiðbeint með áveitu á allmörgum bæjum, eins og áður
er getið, þar á meðal á Móeiðarhvoli, Stóra Hofl og
Kaldárhoiti í Rangárvallasýslu, Efra Seli í Hrunamanna-
.hreppi og í Þingvallasveitinni í Árnessýslu og víðar. —
Fyrir vatnsleiðslu í bæi hefi eg og mælt á 8 heimilum,
þar á meðal á Stað í Hrútafirði, í Laufási í Höfðahverfi
o. s. frv.
í norðurferðinni í vor skoðaði eg áveituverkið á
Grenjaðarstað. Er búið að gera aðfærsluskurðinn og
leiða vatnið á engjarnar. En mikið er þó enn eftir ógert
til þess að fullkomna áveituna. Verkið hefir verið á-
ætlað 2000 kr. Fyrir sláttinn í sumar var búið að kosta
til þess um 1500 kr. Eigi þykir mér ólíklegt, að kostn-
aðurinn við þetta verk verði alt að 2500 kr. áður en
lýkur.
Árgarðurinn í Kaldaðarnesi er nú langt kominn, og
það mesta og erfiðasta búið. Gera má ráð fyrir, að
hann komi til að kosta allur alt að 10000 kr.
í Kjósinni skoðaði eg og mæidi í haust fyrirhugað
selstöðuland. Stærð þess um 300 hektaia, og girðing
um það mundi kosta um 3000 kr.
Sýningar á búpeningi voru ekki aðrar þetta ár,
svo mér sé kunnugt, en tvær héraðssýningar á hrossum,
i Húnavatnssýslu og Skagafirði, og allmargar hrútasýn-
ingar. — Hrossasýningin fyrir Húnavatnssýslurnar var