Búnaðarrit - 01.01.1914, Page 128
124
BÚNAÐARRIT
eða búnaðarskóla, og Ólafur hafði verið á nnglinga-
skóla. — Nokkrir þeirra voru þegar ráðnir eftirlits-
menn.
Kenslan fór aðallega fram í fyrirlestrum. Kent var ;
Fóðrun búpenings 5 stundir á viku, um kynbætur 1 stund
á viku, eftirlitsreikningur 5 stundir á viku, um eftirlits-
starfið 1 stund á viku, um liffærin og sjúkdóma búfjár
7 stundir á viku, ræktun matjurta o. fl. 2 stundir á
viku, verklegar æfingar í mjöltum og fitumæling 9 stundir
á viku, og loks efnafræði 4 stundir alls. Það veröur
samtals nálægt 32 stundum um hverja viku.
Kennarar, auk mín, voru þeir Asgeir efnafræðingur
Torfason, er kendi efnafræðina, Einar garðyrkjumaður
Hélgason, er kendi um ræktun matjurta, og Magnús
dýralæknir Einarsson, er kendi um liffæri og skepnu-
sjúkdóma. Hann veitti einnig verklega tilsögn í doða-
lækningum, bólusetning sauðfjár o. s. frv.
Smjörbúin. Þau voru 30 búin, sem störfuðu árið
sem leið. Breytingar á þeim hafa orðið þær, að Reykja-
dalsbúið í Suður-Þingeyjarsýslu er hætt, og sama er að «
segja um Kerlækjarbúið í Staðarsveitinni í Snæfellsnes-
sýslu, og mun það algerlega niðurlagt. Að öðru leyti
störfuðu búin með svipuðum árangri og að undanförnu,
hvað smjörframleiðsluna snerti, en verðið á því var
lægra en næstu árin á undan.
Auk þessa, sem hér hefir verið talið, hefi eg á árinu
skrifað 400 bréf, gert nokkrar skýrslur og kostnaðar-
áætlanir, útvegað mönnum ýms verkfæri o. s. frv. —
Eg hefi verið á fjórum búnaðarnámsskeiðunum, eins og
áður er getið, og haldið þar og annarstaðar samtals 33
fyrirlestra.
Reykjavík 7. janúar 1914.
Sigurður Sigurðsson.