Búnaðarrit - 01.01.1914, Page 130
126
BÚNAÐARRIT
Gullbringusýslu keypt fé í Borgarfirði og norðan að, en
í þeirri sýslu var skorið niður aftur. Á niðurskurðar-
svæðinu austan við Þjórsá var fóð víst mest keypt úr
Skaftafellssýslu.
Menn mundu nú óska eftir, að eg segði eitthvað
frá því, í hvaða sveitum og á hvaða bæjum eg hefði
séð bezt fó eða flest af góðu fé. Eg skal taka það fram,
að í raun og veru skarar engin sveit og enginn bær
iangt fram úr með að eiga gott fé, en þó er munurinn
mjög mikill á því bezta og versta. En eg býst ekki við
að fara iangt út í þessa sálma hér, og það mest rúms-
ins vegna, og svo er ekki þægilegt í- fám orðum að
telja upp bæi, þar sem flest er af góðu fé, því að stigin
eru svo mörg. Svo kom jeg ekki heldur á alla bæi og
ekki á jafnmarga bæi í hverri sveit hlutfallslega eftir
fjárfjölda. Leiddi það af misjöfnu tíðarfari og mismiklum
áhuga manna á að láta skoða fó sitt. Á ferðinni var eg
víða spurður eftir þessu, hvar eg hefði séð bezt fé, og
reyndi ég að leysa úr þeim spurningum eftir mætti.
Eg skal nú samt telja upp sveitir, innan hverrar sýslu,
þar sem eg sá flest af góðu fé.
í Gullbringusýslu sá eg flest af vænu fé í Garða-
hreppnum og þá einkum í Garðahverfinu og svo út í
Höfnum. í Árnessýslu er fleira af góðu fó í uppsveitun-
um, og þó töluvert svipað þar, en þó þótti mór það
einna álitlegast í Þingvallasveitinni. í Rangárvaliasýsl-
unni er flest af góðu fé í sveitunum vestan Eystri
Bangár. En í Skaftafellssýslu sá eg flest af góðu fé í
Hvammshreppi og Kirkjubæjarhreppi.
Varla nokkursstaðar gat eg fengið ábyggilegar
skýrslur um þyngd fjárins, en víða mældi eg kindur, og
set eg hér nokkrar tölur og sýni þá meðalstærð á full-
orðnum kindum, sem eg mældi, í hverri sýslu fyrir sig.
Tölurnar líta þannig út: