Búnaðarrit - 01.01.1914, Page 139
BÚNAÐARPJT
135
í það að þessu sinni. Aðalarður er kjötið, og er slátur-
féð einkum sauðir og veturgamalt, og svo kvíær. Til
jafnaðar mun fjöldinn af fullorðnum sauðum gera 44—
50 pd. kjöt, veturgamalt fé 25—32 pd. og kvíær eitt-
hvað líkt. Dilkar munu gera um 20—28 pd. Af vetur-
gömlu og ám eyða menn oftast þvi lakasta, og sum-
staðar hafa menn aðallega kvíær til heimilisskurðar, og
er það leiðinlegt. Ekki gat eg fengið ábyggilegar upp-
lýsingar um það, hvað mörg °/o kjöt og mör kindur
gerðu af iifandi þunga. Hefl hér að eins eitt lítið dæmi.
Einar Pálsson á Býaskerjum á Miðnesi, slátraði tveimur
sauðum haustið 1911, er vógu 120 og 136 pd. Sá er
vóg 120 gerði 46 pd. kjöt og 8 pd. mör=44%» en hinn
gerði 49 pd. kjöt og 9 pd. möi—.43%, Þetta er lág
tala, en þess má geta, að sauðirnir voru teknir spreng-
fullir úr þaranum. í fjallasveitunum býst eg við að
fullorðnir sauðir geri um 50%, en þar sem þeir ganga
á mýrum (t. d. í Landeyjunum), gera þeir líklega um
45°/o. Alt sláturfé (geldfé) þyrfti að ná því að gera
50%, og það verður með batnandi meðferð og vali.
Sumir ætla að ekki só hægt að sameina kjöt og mjólk.
Etr það er hægt, þannig að undan mjólkurám koma
feitlægnir sauðir og dilkar, og þegar mjólkurærnar eru
geldar, fitna þær oft hvað bezt. En ekki má ætlast til,
að ærin geri hvorttveggja í einu, að mjólka mikið og
fltna mikið. Eg held annars að margir bændur syðra
geiðu rétt í því, að hætta við sauðaeignina — t. d. þeir,
er hafa nokkra sauði með ám. — Þeim yrði arðmeira
að hafa ærnar geldar síðasta árið. Þær veiða oft nærri
því eins vænar og sauðir. Hafa svo sumar ærnar með
dilk, en hafa til förgunar geldær og dilka. Þarna gætu
menn sparað hey í lömb og sauði, en fjölgað ánum.
Oft mjólka ær líka miður vegna þess, að of margt er í
högunum. Menn ættu að athuga þetta, einkum smá-
bændurnir. Lambrútum undan ám, er fært yrði frá,