Búnaðarrit - 01.01.1914, Page 143
BÚNAÐARRIT 139
hvenær zinklagið er búið, því þá verður þráðurinn fallega
eirlitaður. .
Blásteinsvatnið, sem brúka á, verður að vera rótt
samansett, og er það búið þannig til: í 1 lítra (1 pott)
af hreinu vatni eru látin 200 grömm (40 kvint) af blá-
steini, og hrært i við og við eða hrist, þangað til allur
blásteinninn er uppleystur. Upplausn þessa má svo
geyma í flösku með góðum tappa og brúka af henni
eftir þörfum til hverrar rannsóknar. Gæta skal þess og,
að upplausnin sé sem næst 15° C. Sé hún kaldari en
þetta verður hún seinvirkari, en leysir zinkið fljótar ef
hún er heitari.
Aðferðin verður þá þessi :
Lát nokkuð af áður nefndri blásteinsupplansn, 15° C.
heitri, í bolla eða annað hœfilegt ílát úr leir eða gleri.
Dýf bút af vírmnn, sem rannsaka á, ofan í upplausn-
ina og halt hornnn niðri ? nálcvœmlega 1 míniáu. Tak
vírbútinn upp úr og skola af homnn í hreinu vatni.
Lát liann ajtur liggj'a í upplausninni í 1 mínútu, skola
aftur af honum, og þannig JcoU af kólli, þangað til komiö
er samfelt rautt eirlag á vírinn. Sjálfsaqt er að merkja
hjá sér í hvert sinn sem vírnum er dýft niður í vökvann.
Því fleiri dýfur (minútur), sem þurft heflr til að eyða
zinklaginu af vírnum, því þykkara heflr það verið.
Mínútufjöldinn, sem vírinn hefir þurft að liggja í blá-
steinsupplausninni, áður hann yrði rauður, er því mæli-
kvarði á þykt zinklagsins og þar með endingu virsins.
Sjálfsagt er að gera að minsta kosti 2 tilraunir með
hverja vírtegund, og á þeim þá að bera saman ef vel er.
Beri þeim ekki saman, verður að gera fleiri tilraunir
með sömu vírtegundinni.
Til þess að fá dálítið yfirlit yfir hvernig gaddavír
sá er, sem hafður er hér á boðstólum, tók eg að mér
fyrir Búnaðarfélag íslands að athuga þær gaddavírsteg-
undir, er eg gat náð til. Fókk eg alls 9 tegundir af
gaddavír og 1 tegund af sléttum vír. Auk þess að á-