Búnaðarrit - 01.01.1914, Page 158
154
BÚNAÐARRIT
aði 22. júní. Hefl eg þá haft 8 námsskeið alls, 5 í
Eyjafjarðarsýslu og 3 i Skagafjarðarsýslu.
Fyrirkomuiag námsskeiðanna allra var hér um bil
hið sama. Kenslau hófst kl. 9 á morgnanna og stóð til
kl. 2 síðd. Fyrst var byrjað með því að syngja sálm.
Því næst var munnleg kensla í fæðuefnafræði, sem fór
fram i fyrirlestrum og viðtali. Þá var næst byrjað á
verklegri kenslu. Á þeim tíma, sem eftir var til kl. 2,
bjuggu nemendur til miðdegisverð handa sór, bökuðu
kaffiibrauð og matarbrauð, suðu niður og gerðu sápu,
þar sem hægt var að fá efni í hana. Eftir að kenslunni
var lokið á daginn, skrifuðu nemendur upp hið helzta,
sem kent hafði verið, sér tii minnis, og þar á eftir var
hér um bil einni kiukkustund varið til þess, að syngja
ættjarðarsöngva eða dansa þjóðdansa.
Fyrsta námsskeiðið hófst í Ólafsfirði 7. okt. og stóð
yfir í hálfan mánuð. 12 konur tóku þátt í verklegu
námi.
Annað námsskeiðið hófst í Bragholti 24. okt. Þar
voru 8 konur, sem tóku þátt í verklegu námi, og þar
að auki 12 auka-nemendur, sem hlustuðu á og fylgdust
með i kenslunni. Námsskeiðið stóð yfir i hálfan mánuð.
Þriðja námsskeiðið hófst í Hrísey 13. nóv. og stóð
yfir í hálfan mánuð. Þar tóku 8 konur þátt í verklegu
námi og 4 auka-nemendur.
Fjórða námsskoiðið hófst á Möðruvöllum í Hörgár-
dal 3. des. og stóð yfir í hálfa þriðju viku. Þar voru
12 konur, sem tóku þátt í verklegu námi, auk þess 4
aðrar, sem sóttu námsskeiðið.
Fimta námsskeiðið hófst á Öngulsstöðum 5. jan.
og stóð yfir í hálfan mánuð. 12 konur tóku þátt í
verklegu námi, og enn fremur voru þar 8 auka-nemendur.
Þann 28. jan. lagði eg af stað frá Akureyri áleiðis
til Skagafjarðar og kom að Víðimýri 30. s. m. Með
leyfi Búnaðarfélagsins fór eg þá minna ferða, þar til er
eg kom að Víðimýri aftur 27. febr.