Búnaðarrit - 01.01.1914, Page 177
BÚNAÐARRIT
171
efnaskránni, en gerir reikninginn óhreinni og getur
valdið villu.
4. Yinna vib tilbúning matar, fata og eldiviðar,
þvotta og ræstingar, aðflutningur til þessa og geymsla,
viðhald húsa og allskonar búshluta, er fólkið þaifnast,
Þessar tekjur koma allar af heimilisvinnu manna og
hrossa (nema aðkeypt vinna eða efni sé, þá tilheyiir það
1. flokki), og þær ganga allar handa fólkinu.
Þetta eru ekki tekjur eða gjöld fyrir búsheildina,
meðan það nær ekki 1. eða 2. flokki, enda ekkert verð
til á því hverju fyrir sig, og flnst ekki nema með ágizkun.
Það getur því ekki átt heima í aðalreikningnum, heldur í
smá-áætlunarreikningunum „Framfæri fólksins" (sjá síðar).
5. Allskonar heimilisvinna við allar atvinnugreinar
búsins, með tilheyrandi húsum og áhöldum, bújörð
(eignarjörð) og áburði. Um þetta er sama að segja og
4. flokk, nema það gengur alt til atvinnugreinanna, en
ekki handa fólkinu. Það tilheyrir því aðeins viðeigandi
atvinnugreinum og telst í smáreikningunum. En mis-
munurinn, sem verður á eigninni í þessu i reiknings-
árslokin, tílheyrir einnig 3. flokki (efnaskránni).
Að þessu athuguðu verður ljósara, að formin, sem
hér eru sýnd, eru bygð á allmiklum rökum, svo um
aðra leið mun naumast að tala í aðalatriðunum, þó að
ýms smærri atriði geti tekið breytingum til hins betra.
III.
Efnaskrá
31. maí 1912.
1. Búshlulir: Kr. a. Kr. a.
a. Bækur » » 50 »
b. Fatnaður:
4 karlmannsfatnaðir allskonar . . 100 »
4 kvenfatnaðir 100 »
rúmföt í 5 rúm 120 » 320 »
Flyt » » 370 »