Búnaðarrit - 01.01.1914, Síða 208
202
BÚNAÐARRIT
og fjárhirðir ráðinn Sigfús Jónsson. Þá um vorið voru
keyptar 45 ær með lömbum á 16—20 kr. hver, og 2
hrútar. Félagsmenn voru þá orðnir 38, en hlutirnir 40
alls. Haustið 1899 var meðalþyngd ánna 125 pd.,
lambgimbranna 75 pd. og lambhrútanna 88 pd. Fyrstu
2 árin, 1897 og 1898, naut félagið styrks úr jafnaðar-
sjóði, og úr sýslusjóði Suður-Þingeyjarsýslu fékk það og
styrk nokkur ár. Búnaðarfélagið styrkti það einnig árin
1902—1907.
Vorið 1907 fluttist fjárbúið að Einarsstöðum, og tók
þá Sigurjón Friðjónsson við umsjón þess og hirðing.
Sama ár voru keyptar nokkrar kindur vestan úr Stranda-
sýslu til reynslu. Er þeim fjárstofni haldið sér. En
ekki reynast þessar kindur eins vel, enn sem komið er,
og þingeyska féð. Haustið 1908 var meðalþyngdin á
þessum Strandasýslu-ám 102 pd., en heimaöldu ánum
129 pd., og haustið 1909 voru vestanærnar pd.
til jafnaðar, en hinar 128 pd.
Flest árin hefir fjárbúið eða féiagið selt eitthvað af
hrútum, bæði veturgömlum og iambhrútum. Haustið
1905 seldi það t. d. 4 hrúta veturgamla til kynbóta á
40 kr. til jafnaðar; 1907 seldi það 5 hrúta á 35 kr. til
jafnaðar, og 1908 seldi það 3 á 30—38 kr. Það sama
haust seldi það og 7 lambhrúta á 11—16 kr. Loks má
geta þess, að haustið 1911 voru seldir frá búinu 3 hrútar
veturgamlir á 30—40 kr. og 3 lambhrúiar á 12—15 kr.
Þá um haustið voru settar á 49 ær, þar af 7 af vestan-
stofninum, 17 lambgimbrar og 6 lambhrútar.
Vorið 1913 var fjárstofn Fjárræktarfélagsins seldur.
Keyptu það 6 menn í fólagi, þeir Sigurgeir Jónsson á
Heiluvaði, Sigurður bróðir hans á Arnarvatni, Sigfús
Jónsson á Halldórsstöðum og Jón sonur hans, Sigurjón
Friðjónsson á Litlu Laugum og Hallgrímur Þorbergsson.
Ærnar, 44 taisins, kostuðu 26 kr. hver að meðaltali,
gemlingarnir 16 kr., veturgömlu hrútarnir 30 kr. og
tvævetur hrútur 50 kr.