Búnaðarrit - 01.01.1914, Page 213
BÚNAÐARRIT
207
Um fjár?tofninn á Leifsstaðabúinu segir Jón H.
Þorbergsson, að féð sé stórt, jafnvaxið, svipfrítt, litgott
og allvel líkt hvað öðru, en vart nógu hraustlegt.
Vorið 1911 voru ærnar 35, og áttu þær samtals
61 lamb. Hafa því flestar þeirra átt tvílembt.
Haustið 1912 vigtuðu fullorðnu hrútarnir:
1. Spakur 4 vetra.............. 233 pd.
2, Fífill veturgamall .... 200 —
Fífill er hrúturinn, sem keyptur var lamb frá Stóru-
tungu, og þykir framúrskarandi fagur, hvar sem á hann
er litið. — Ullin af honum veturgömlum var óþvegin
6 pd.; en tvævetrum (vorið 1913) 8 pd., en 6 pd. þvegin.
— Annars hefir ullin af kynbótafénu óþvegin verið að
meðaltali sem hér segir:
Fullorðnu hrútunum ... 8 pd.
Lambhrútunum.............4J/2 —
Fullorðnu ánum............4^8 —
Haustið 1911 selur búið 5 hrúta. Vigtuðu þeir að
meðaltali 148 pd. — sá þyngsti 170 pd. — og seldust
þeir til jafnaðar á 27 kr. Haustið 1912 selur það 6 hrúta.
Þeir vigtuðu að meðaltali 144 pd., og seldust þeir til
•jafnaðar á 27 kr.
7. Sveinsstaða og Haga lúið í Þingi í Austur-
Húnavatnssýslu. Það var stofnað 1911. Eigendur þess
eru þeir Magnús bóndi Jónsson á Sveinsstöðum og Jón
bóndi Jónsson í Haga.
Ástæðan til þess, að bú þetta er í tvennu lagi, er
sú, að enginn af þeim, er talinn var líklegur til þess að
taka það að sér, treystist til þess öðruvísi en á þennan
hátt. Hinu er ekki að leyna, að fyrirkomulag þetta er
miður hentugt, enda geri eg ráð fyrir, að kynbótabúin
sameinist í eitt með tímanum. _____
Kynbótabú þetta er ungt, og engin reynsla fengin
um starfsemi þess. En hins má geta, að á þessum