Búnaðarrit - 01.01.1914, Page 236
230
BÚNAÐARRIT
Var það gert bæði vegna eldhættu og einnig vegna raka,
sem altaf er mikill í slíkum húsum, og mundu því
timburþiljur fúna fljótt.
Skálinn er hólfaður sundur í 7 herbergi: Fordyri,
fiturannsóknarklefa, afgreiðsluklefa, smjörgerðarklefa, eid-
hús, rjómaklefa og matarklefa.
í fjórum klefunum er gólfið lagt steintiglum, hvít-
um og svörtum. Taka slík gólf langt fram öðrum gólf-
um, er hér tíðkast, sökum þess hve varanleg þau eru,
auðræst og falleg. Hin gólfin þrjú eru gerð úr stein-
steypu. Veggir rjómaklefans eru þiljaðir og „stopp" á
milli. Hurðir og gluggar tvöfalt. Er það gert til að
halda hitanum sem jöfnustum allan tíma árs. — í hverju
einu var leitast við að gera húsið sem varanlegast og
hagkvæmast eftir því sem ástæður leyfðu. — Er það ósk
min, að sem flestir rjómaskálar, er hér eftir verða bygðir
á rústum hinna gömlu skála, megi líkjast þessu húsi.
15. okt. í haust byrjaði hér nýtt námsskeið. Um
inntöku höfðu sótt 9 stúlkur, en tvær af þeim komu ekki.
Veturinn 1912—’13 voru búin hér til um 4000 kg.
smjörs og tekið nokkuð af ostum (mjólkurostar og
mysuostar).
í sumar sem leið tókst eg ferð á hendur til
Norðurlands. Var það gert eftir ákvörðun Búnaðarfélags
íslands og ósk rjómabúanna nyrðra, og vil eg nú leyfa
mér að segja nokkur orð um rjómabú þau, er eg kom
á í þeirri ferð.
Ljósavatns rjómabúið er i meðallagi að stærð.
Rjómaskálinn góður; er hann með torfþaki, og tel eg það
kost, því þá er miklu hægara að halda hit.anum inni
jöfnum, þó að hann breytist úti. Formaður búsins er
mjög duglegur og lætur sér einkar-annt um búið.
Nýja smjörvatnsvog hefir búið eignast. Rjóminn frá
félagsmönnum mjög góður.
Rjómabúið í Fnjóskadal. Húsakynni mjög góð og
áhöld til smjörgerðar sömuleiðis. Er notuð túrbína.