Búnaðarrit - 01.01.1914, Page 240
234
BÚNAÐARRIT
Þægindin við þessa aðferð eru þvi fyrst og fremst
vinnusparnaður og peningasparnaður, til reikninga og
rannsóknarefna (brennisteinssýra og amylalkohol). Enn
fremur er aðferð þessi fyllilega eins nákvæm og sú er
áður hefir tíðkast við fiturannsóknir.
Að lokum vil eg enn á ný minna rjómabúin á
smjörvatnsvog þá, er eg hefi áður lýst (í Búnaðarritinu)
og öll rjómabú þurfa að eiga.
Eg hefi hugsað mér, að það gæti verið gott fyrir
bústýrur þær, sem ekki hafa enn lært að nota þessa
vog, og ekki heldur að hafa aðferð þá, er áður var lýst
við útreikning smjörsins, að koma saman (t. d. að
Sandvík, Birtingaholti og Rauðalæk), og fá hjá mér frek-
ari upplýsingar viðvikjandi hvorutveggja.
Ósk um þetta yrði þá að koma til' mín í tíma frá
bústýrunum eða formönnum búanna, svo að eg gæti með
nægum fyrirvara ákveðið stað og stund.
H. Grunfeldt.
Vinnuhjúaverðlaun 1914.
Umsækjendur voru 45, 10 karlmenn og 35 kvenn-
menn, úr þessum sýslum: Skaftafells 4, Rangárvalla 8,.
Árness 3, Gullbringu og Kjósar 5, Borgarfjarðar 1,
Snæfellsness 1, Dala 3, Barðastrandar 7, ísafjarðar 4,
Stranda 4, Húnavatns 2, Skagafjarðar 1, S. Múla 2. —
Verðlaun voru veitt í þetta sinn 29, 7 karlmönnum og
22 kvenmönnum, öll í einum flokki eins og síðast og
af sömu ástæðu.