Búnaðarrit - 01.01.1914, Page 269
BÚNAÐARRIT
263
Meðal þeirra er Metúsalem skólastjóri Stefánsson og þeir
fjárræktarmennirnir Þorbergssynir, Hallgrímur og Jón.
Fer Metúsalem til Bretiands og Noregs, Hallgrímur til
Noregs, en Jón til Bretlands. Allir ætla þeir að vera á
búnaðarsýningum. Metúsalem hefir verið falið sérstak-
lega að fara til Newcastle og gera tilraun til að fá um-
bætur á Ijáunum, sem hingað flytjast. Þess hefir áður
verið farið á leit, oftar en einu sinni, en árangurslítið;
þykir þó rétt að reyna enn.
Nýtt jarðyrlcjuverkfœri kom hér til sögunnar í
fyrra suinar. Það var ofanafristuplógur, sá er Sigurður
Þ. Johnson kennari hefir látið gera og kallar Sköfnung.
Búnaðarfólagið veitti styrk nokkurn til að fullgera plóginn.
Hann var reyndur nokkuð í fyrra og var vel af látið.
Hann fær nú fyllri reynslu í sumar, því að Sigurður er
ráðinn til vinnu hjá Búnaðarsambandi Borgarfjarðar;
hefir hann plóginn með sér og fær tækifæri til að reyna
hann og sýna víða.
Tilraun með ostagerð. Þess var getið á aðalfundi
í fyrra, að Jón Guðmundsson frá Þorfinnsstöðum, sem
fengið hafði styrk hjá búnaðarfélaginu til Bretlandsfarar
til sauðfjárræktarnáms, hefði brugðið sér úr þeirri ferð
til Ro<4uefort á Frakklandi, til að kynna sór ostagerðina
þar. Hann gerði svo tilraun í fyrra heima hjá sér með
ostagerð. Heppnaðist hún alveg ótrúlega vel, þrátt fyrir
mjög ófullkomin tæki. „Gráðaosturinn" hans rann út
hér í Reykjavík. Jón heldur nú áfram tilraununum,
fær sér meiri og betri tæki og betri kjallara. Búnaðar-
félagið hefir veitt honum styrk nokkurn til þess, með
því skilyrði, að hann veiti tiisögn í ostagerðinni, ef til-
raunirnar heppnast vel. Þykir ekki ólíklegt, að þetta
fyrirtæki verði búskapnum okkar að liði.
Góð aðstoð í þessu efni má búast við að hún verði
gerlarannsóknarstofan Gísla Guðmundssonar. Gísli hefir
líka mikinn áhuga á ostagerðinni og fleiru, er búnaðin-
um við kemur. Hann hefir lofað Búnaðarritinu bráðum