Búnaðarrit - 01.01.1914, Page 270
264
BÚNAÐARRIT
grein um ostagerð á heimilum. Fær hann nú húsnæði
fyrir rannsóknir sínar í Búnaðarfólagshúsinu. Er verið
að búa út herbergi handa honum þar á loftinu. Með
þessu er tvent á unnið í einu: að veita þarfri stofnun
gott húsnæði, og að félagið fær arð nokkurn af húsrúmi,
sem áður var iítið notað.
Jarðyrkjubók I. Á aðalfundi í fyrra var búist við,
að hún yrði prentuð fyrir haustið. Það varð þó ekki,
mest vegna annrikis prentsmiðjunnar um þingtímann.
Þó var hún notuð við kenslu í búnaðarskólunum í vet-
ur sem leið. Útgefandinn, Sigurður bóksali Kristjánsson,
lét búnaðarfélagið fá ókeypis 50 eintök af henni, og
voru arkirnar sendar skólunum jafnóðum og þær voru
prentaðar. Nú er bókin prentuð. Hún er talsvert stærri
en ráð var fyrir gert, 16—17 arkir, og að auki töflur
og 2 kort.
Félaqatal. Nýir félagar urðu árið sem leið miklu
fleiri en nokkurt ár áður, 146. Árið þar á undan höfðu
þeir verið 115, og var það þá mesta félagaviðbótin á
einu ári. Einnig þetta ár lítur vel út með fjölgun félaga.
Komnir síðan um nýár 58, þar af núna í vikunni sem
leið 15 úr sömu sveit, Biskupstungum. Ungir bændur
og bændaefni eru farnir að sjá, að það borgar sig bezt
að ganga í félagið sem fyrst. Það var víst í þessari
sömu sveit, að bóndi einn fann í fyrra það snjallræði, að
gefa syni sínum í fermingargjöf félagaskírteini búnaðar-
félagsins. Einhverir fleiri hafa gert það aftur nú í vor,
og íslendingur einn í Yesturheimi sendi bræðrum sínum
4 hér heima sitt félagaskírteinið hverjum. Félagatalan,
sem var 1000 í septemberiok 1912, er nú að fylla 12.
hundraðið.
Leiðheiningar í híisagerð. Félagsstjórnin hafði oftar
en einu sinni vakið máls á því við stjórnarráðið, hve
mikil nauðsyn væri á því, að bændur ættu kost á slíkri
leiðbeiningu nú, er húsagerðin í landinu er óðum að breyt-
ast. Búnaðarþingið í fyrra áréttaði það með áskorun til al-