Búnaðarrit - 01.01.1914, Page 271
BÚNAÐARRIT
265
þingis um að veita fé til þessa. Alþingi var5 viö þeirri
ósk og veitti 1000 kr. styrk handa einum manni til
þessara leiðbeininga. Stjórnarráð.ð hefir falið þetta starf
Jóhanni Fr. Kristjánssyni, og er hann nú tekinn til
starfa eftir erindisbréfi frá stjórnarráðinu.
Fóðarforðabíiramálið. Á það mál hefir verið minst
á fundum félagsins undanfarin ár, enda er það að sjálf-
sögðu og hefir verið áhugamál félagsins. Árið sem leið
verður merkisár í sögu þess máls, þar sem alþingi í
fyrra lagði svo mikla rækt við það, að það samdi fern
iög því viðkomandi: um bjargráðasjóð, um forðagæzlu,
um gjafasjóð Jóns Sigurðssonar og viðaukalög við korn-
forðabúralögin. Það eru sjálfsagt, eins og gerist, skiftar
skoðanir um sum af þessum lögum, en á því getur ekki
vafi leikið, að það er góðs viti að löggjafarvaldið hefir
sýnt, að því er full alvara með að ráða fram úr hinu
mesta vandamáli og vandræðamáli búskaparins okkar.
Og víðar en á alþingi hafa menn nú síðasta árið haflst
handa um þetta mál. Eyftrðingar hafa afráðið að verja
vöxtum af gjafasjóði Jóns Sigurðssonar, samkvæmt hinni
nýfengnu lagaheimila, til kornforðatryggingar. í nokkr-
um hreppum DalasýsJu hafa verið gerðar samþyktir um
fóðurforðabúr og í hinum hreppunum í sýslunni mun
vera í ráði að tryggja sjer kornforða samkvæmt viðauka-
lögum við kornforðabúralögin. í Lýtingsstaðahreppi í
Skagafirði heflr verið gerð samþykt um kornforðabúr.
Má vera að svo sé víðar. Ætti að mega vona, að fyrst
nú er nokkur skriður kominn á, þá vakni brátt fleiri til
verklegra framkvæmda í þessu máli, sem um má segja,
fremur en flest önnur, að dráttur er liætta.
Þá tók til máls Sverrir búfræðingur Gíslason frá
Hvammi um nauðsynina á að gerðar væru rækilegar til-
raunir með að fóðra sauðfé á korni og öðrum fóðurbæti,
og benti á hvernig því mætti við koma. Enn þekti menn
svo lítið til þess og tæki ekki til þeirra ráða fyr en í