Búnaðarrit - 01.01.1914, Page 273
Um forðamat,
einbum heyja.
Það er ekki tilætlunin með að rita línur þessar, að
íara að þrefa við einn né neinn um nytsemi forðagæzlu
þeirrar, sem lögin frá síðasta þingi skipa fyrir. fað er
óþarfi, af því þau eru þegar orðin gildandi lög.
Hitt er tilætlunin, að leggja minn skerf til þess að
leiðbeina og létta fyrir með þenna starfa, sem lögin leggja
á hina væntanlegu forðagæzlumenn.
Eg hefi talsvert fengist við heyskoðanir og líklega
hugsað meira um það málefni en flestir aðrir, og því
býst eg við, að einhverjir, sem minna hafa fengist við
það starf og minna um það hugsað, gætu haft eitthvað
gott af því, að athuga þessar línur og nota þær bend-
ingar, sem í þeim eru, þegar til starfans kemur.
Að meta forðann rétt og annað það, sem mest
veldur því, hvernig hann endist, er talsvert vandaverk
og útheimtar gætni, góða skynsemi, kunnugleika á haga,
heyjum, holdum búpenings, húsakynnum og búfjárhirði,
og svo þurfa forðagæzlumenn að vera nokkurn veginn
að sér í reikningi og skýrslugerð. Það er því ekki maður
á hverju strái, sem vel sé fær um þenna starfa, sízt í
byrjuninni, en auðvitað kemur alt þetta með æfingu og
einkum góðum vilja.
Þó að þeir kunni nú 'að vera margir, sem hafa á
móti forðagæzlunni og telja hana fánýta, meðan þeir