Búnaðarrit - 01.01.1914, Síða 277
BÚNAÐARKIT
271
nægar heybirgðar, ef ekki var innistöðufóður fyrir mjólkur-
kýr í 36 vikur, sauðfé í 24 vikur og hross í 18 vikur,
og reynslan sýndi, að þá þurfti kýrin 120 teningsálnir
(ársgamlir kálfar voru taldir sem V2 hýr> en sumrungar
eða haustaldir káifar sem l/» nr kú), sauðkindin 5 ten.áln.
og hrossið 30 ten.áln., alt eftir mati. Á moðin settum
við ávalt eitthvað af hrossum.
Þá var um ekkert annað fóður talað en hey, töðu
eða úthey.
Nú er ýmislegt orðið breytt, farið að treysta upp
á margskonar annað fóður, svo sem mjölvöru, fiskúr-
gang, síld, lýsi og fóðurmjöl (úr síld, hval eða fiskúr-
gangi). Og þetta þarf alt að metast til fóðurgildis sam-
hliða heyi. Það er því ekki hægt, að nefna alt fóður í
ten.álnum, auk þess sem álnir eru nú úr lögum numdar.
En eitthvert nafn verður að hafa, og að miða þá ein-
ingu, sem það nafn fær, við eitthvað þekt. Mér hefir
fundist, að teningsalinin í ágætu smáheyi í garði væri
hæfiiega stór eining í þessu sambandi, og vil eg miða
alt fóður við það fóðurgildi, sem hún hefir, og nefna það
forðamál, og því nafni slæ eg hér föstu.
Þá vik eg að heyjunum aftur og fer að leggja þau
í forðamál eftir þeirri niðurstöðu, sem reynslan gaf mér
í Fellshreppi, og set vist númer á hverja heytegund
eftir því hvernig heystæðan er.
Númer 1 kalla eg 2/3 töðu og x/3 útheys í garð-
heyi og tel þar rúmstikuna 5 forðamál.
Númer 2 'lja töðu í hlöðu og V8 útheys eða smá-
gert valllendis eða veituhey í garðheyi, sem er vel sigið
og vel orðið. Þar tel eg rúmstikuna 4 forðamál.
Númer 3 smágert hey í hlöðu með góðri verkun.
Þar er rúmstikan talin 2,9 forðamál, ef hlaðan er um
5—6 áln. breið og um 4 álna veggir, en 3 forðamál
eða meira i breiðum og háum hlöðum, alt að því sama
sem í garðheyi, ef hitnað hefir í heyinu hæfilega.