Búnaðarrit - 01.01.1914, Page 278
272
BÚNAÐARRIT
Númer 4 vel verkað fjallhey (brok eða stör), þétt
en hitalaust í garðheyi, 3 forðamál.
Númer 5, brok og létt mýrahey i hlöðu hitalaust
2,3 forðamál að 2,5 ef hlaðan er vel há og breið.
Útkoman verður þá þessi:
1 rúmstika Nr. 1X5
1 — — 2X4
1 — — 3X2,9 til 3,5
1 — — 4X3
1 — — 5X2,3 til 2,5
Þegar nú þannig er búið að koma öllu heyi undir
sama hatt á þennan hátt, þá er eftir að reikna, hvað
mörg forðamál þarf fyrir svo og svo margan fénað
þennan og þennan tíma, og er það ekki svo fljótlegt og
ekki allra meðfæri, að finna auðvelda aðferð til þess,
sizt undir þeim kringumstæðum, sem forðagæzlumenn
verða að sætta sig við, reikna þetta út í peningshúsum
og undir berum himni o. s. frv.
Til þess að létta þenna starfa, hef eg búið til töflu
þá, sem hér fer á eftir, og notaði eg hana mér til ó-
metanlegs léttis, þegar eg hafði heyskoðun á hendi. Eg
ætla nú að setja hér dæmi til skýringar á töflunni:
Eg kem á bæ um góulok. Verður þar fyrir mér
heystæða nr. 1, er mæiist 17 rúmstikur, margfaldað
með .................................5 = 85 fm.
tvær heystæður nr. 2 samt. 37 rúmst. X 4 =148 —
— — nr. 3 — 63 — X 2,9=183 —
ein heystæða nr. 4 7 rúmst. X 3 . . . =21 —
— — nr. 5 13 rúmst. X 2,3 . . = 30 —
Samtals
467 fm.