Búnaðarrit - 01.01.1914, Side 283
BÚNAÐARRIT
277
12 vikur, og hefði bví ekki átt að þurfa eítir töflunni
nema 100 X 34—3400 forðamál og 70 X 12=840 forðamál.
Sauðféð heflr aldrei verið nema 540 og innistaða þess
að eins 19 vikur. Taflan segir, að 500 þurfi 105 fm.
og 40 8,4=113,4 X19, sem verða 2155 fm. Alls 6395 fm.,
og ættu þá fyrningar að vera 1281 forðamál, ef áætlunin
hefði verið nákvæmlega rétt. Og mér heflr tekist það í
10 ár samfleytt, að skakkinn á áætluninni hjá mér og
þeim, sem hafa getað staðhæft um innistöðutímann, hefir
aldrei orðið hærri en 4V2% °S það niður í V2%, Og
oftar á þann veginn, að heyin hafa reynst betur.
Ef nú forðagæzlumenn reyna með nákvæmni og
samvizkusemi að leggja sig eftir þessu þjóðarinnar þarf-
asta starfi, svo vel sem unt er, þá mun fara svo, að
þeir verða metnir þörfustu starfsmenn landbúnaðarins,
og þá að eg vona þjóðfélagsins, því land, sem hefir
engan ábyggilegan landbúnað — á hann ávalt í hættu
vegna ráðleysis — verðskuldar ekki að nefnast land.
.........sker er nóg, só það um flotið.
Eg veit það vel, að margir af þeim, sem sjálfir
þurfa ekkert á forðaeftirliti að halda, eru nú mikið á móti
þvi, af því þeir vilja ekki láta setja sér „fjárhaldsmenn",
en þetta er hinn mesti misskilningur. Hór er um enga
fjárhaldsmenn að tala, heldur prófdómara og kennara
þeirra, sem kenslu þurfa. En þeir sem eru þeim mis-
skilningi undirorpnir, að þykja vanvirða að því, að forða-
gæzlumenn skoði hjá þeim, þeir eru mátulega metnaðar-
gjarnir til þess, að verða mjög glaðir yfir góðu prófi,
og verða bráðlega hlyntir öllum forðagæzlumönnum, sem
vaxnir eru verki sínu.
Eg ætla svo að víkja frá öllum þeim hugleiðingum,
sem eg i þessu tilfelli hefi fengið nýlega tilefni til að
athuga — vegna þess að hór á að vera að eins leiðbeining.
Bið eg svo forðagæzlumennina að taka viljann fyrir
verkið. P. t. ísafirði 20. apr. 1914.
Ouðjón Guðlaugsson (frá Ljúfustöðum).