Búnaðarrit - 01.01.1914, Side 304
298
BÚNAÐARRIT
minna móti, sökum hinna sifeldu rigninga og kulda, en í hinum
landshlutunum með betra móti.
Kvillar í sauðfé voru með minna móti þetta ár; lungnaveiki
gerði vart við sig á nokkrum bœjum í upphéruðum Borgar-
fjarðar, og drap nokkrar kindur víðast þar sem hún kom. Or
Strandasýslu er skrifað, að bráðajiest sé að miklu leyti úr sög-
unni sem áberandi fjárkvilli. Síðan bólusetningin var algeng,
fer varla nema 1—2 kindur á stöku bæ. Um fjárkláða er ekki
getið. Höfuðsótt í fé er í rénun; mun það því að þakka, að
hundar hafa um mörg ár verið hreinsaðir all-rækilega.
I Austur-Skaftafellssýslu bar á einhverskonar veiki um vet-
urinn í ungum hrossum, er á gjöf voru. Yirtist veikin næm, og
dóu nokkur tryppi úr henni, en þó batnaði fleirum.
Aflabrögð.
Góðæri til sjávarins. Aflabrögð með betra móti og hátt
verð á fiski.
A vetrarvertíð varð fremur lítill afli á opna báta hér við
Faxaflóa, en á vélarbáta aflaðist mjög vel í suður-veiðistöðunum.
Góður afli á vorvertíð, en lítill á sumar- og haustvertíð. Hrogn-
kelsaveiði góð.
Fiskur var lengstum mikill i veiðistöðum við Snæfellsnes,
en frá áramótum til einmánaðar var mjög tregt um gæftir. Um
vorið ágætur afli fyrir öllu Snæfellsnesi, en þó sérstaklega í
Ólafsvík. Sumar- og haustvertíð rýr bæði vegna ógæfta og land-
helgisveiða botnvörpunga, og þó er landlielgisvörnin talin að
hafa verið betri þar þetta ár en nokkru sinni fyr.
Við ísafjörð var fiskafli mjög litill á vetrarvertiðinni, en
eftir það aflaðist mjög vel í útveiðistöðum við Djúpið; varð
vorvertíðin i betra lagi. Síðari hluta vorsins kom sildarhlaup
og fiskhlaup mikið inn í Djúpið og gekk lengra inn en um mörg
undanfarin ár. Var hlaðafli á Inndjúpi í júlí og ágúst og góður
afli alt haustið fram undir jólaföstu.
í norðurhluta Strandasýslu, einkum í Steingrímsfirði, var
þorskafli allgóður seinni part sumars, svo var og um tíma á
Bitrufirði. Hrognkelsaveiði með minna móti, en selveiði í góðu
meðallagi. Sildarafli nokkur í ágúst og byrjun september, eink-
um á Bitrufirði og Steingrímsfirði. Hákarlsafli með minna móti.
Fyrir Norðurlandi var uppgripaafli af sild; á Eyjafirði voru
altaðar 116 þúsund tunnur af sild, óg á Siglufirði 125 þúsunds