Vera - 01.02.2005, Page 20
Hið gullna jafnvægi
LINDA RUT BENEDIKTSDÓTTIR SÉR-
FRÆÐIN6UR HJÁ IMG OG RITSTJÓRI
WWW.HGJ.IS Á HITTI FEMÍNISTAFÉ-
LAGSINS 1. FEBRÚAR SL.
Ég hef verió beóin um aó fjalla um stööu fjölskyldunnar í samfélaginu sem
fulltrúi Hollvina hins gullna jafnvægis. Eg vil því byrja á aö gera stuttlega
grein fyrir verkefninu „Hiö gullna jafnvægi" sem stóö yfir í eitt ár, frá því í
október 2000 til október 2001, og hvernig því verkefni hefur verið fylgt eftir.
Hið gullna jafnvægi, sem var samstarfs-
verkefni Reykjavíkurborgar og Gallup,
var íslenskur hluti ESB verkefnisins
Striking the Balance sem breska sveitarfé-
lagið Kingston upon Thames hafði for-
göngu um, en verkefnið fór einnig fram í
Þýskalandi og Grikklandi. Verkefnið
hafði það að markmiði að þróa fræðslu-
efni sem getur auðveldað litlum og með-
alstórum fyrirtækjum innan EES að þróa
vinnufyrirkomulag og starfsmannastefnu
sem mætt getur óskum starfsmanna um
betra jafnvægi milli vinnu og einkalífs og
þörf fyrirtækjanna sjálfra fyrir betri nýt-
ingu mannauðs síns. I tengslum við verk-
efnið prófuðu 35 íslensk fyrirtæki fyrstu
drög fræðsluefnisins sem aðlagað var ís-
lenskum aðstæðum.
Sveigjanleiki á vinnustað
Fræðsluefnið bar yfirskriftina „Sveigjan-
leiki á vinnustað í tíu skrefum”, en að
auka sveigjanleika fólks í starfi er sú leið
sem flest fyrirtæki fara þegar markmiðið
20/ 1. tbl. / 2005 / vera