Þjóðhagsreikningar 1901-1945 - 01.08.1992, Side 65
3.9 Hlutfallsleg skipting útfluttra sjávarafurða eftir helstu afurðaflokkum
1911-1945
I töflu 154 í Tölfrœðihandbók 1967 er m.a. sýnd „hlutdeild í útflutningi" fyrir:
1. Saltfisk
2. Hertan fisk
3. ísfisk
4. Freðfisk
Þessar afurðir eru hér nefndar „aðalafurðir“ og leitast er við að meta birgða-
breytingar þeirra ár hvert 1905-1945 í kafla 3.3 hér að framan. Til þess að meta
mikilvægi þessara „aðalafurða“ af útfluttum sjávarafurðum er einnig sýnd hlutdeild
eftirfarandi afurða:
5. Saltsfld
6. Önnur síld
7. Lýsi
8. Mjöl
Tafla 3.9.1
Hlutfallsleg skipting útfluttra sjávarafurða
eftir afurðaflokkum
(1) (2) (3)
Saltfiskur, hertur fiskur, Sfld, Hlutdeild
ísfiskur og lýsi (1) af
Árabil freðfiskur og mjöl (1) og (2)
% % %
1911-1915 49,5 22,5 68,8
1916-1920 52,1 22,1 70,2
1921-1925 65,6 17,9 78,6
1926-1930 65,0 14,1 82,2
1931-1935 63,2 25,0 71,7
1936-1940 43,7 39,6 52,5
1941-1945 65,1 23,0 73,9
3.10 Eldri stuðlar til umreiknings á flski upp úr sjó yfir í fullverkaðan saltfísk
f Fiskiskýrslum Hagstofu kemur í ljós að notaðar hafa verið tvær aðferðir til þess
að umreikna afla yfir í framleiðslu. Þriðja aðferðin er notuð í þessari skýrslu. Auk þess
mætti nefna áætlanir um meðalþyngd, þegar gefin var stykkjatala.
63