Frjáls verslun - 01.08.2007, Blaðsíða 30
30 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 7
D A G B Ó K I N
TEXTI: JÓN G. HAUKSSON • MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON o.fl.
13. september
Gísli Reynisson
kaupir Hótel
D´Angleterre
Þessi frétt kom eins og þruma
úr heiðskíru lofti; að fjárfesting-
arfélagið Nordic Partners, sem
er í eigu Gísla Reynissonar,
hefði keypt hótel hótelanna í
Danmörku, sjálf D´Angleterre;
djásn Dana. Nordic Partners
gerði raunar meira, félagið
keypti líka hótelin Kong Frederik
og Front. Hótelin eru öll í hjarta
Kaupmannahafnar.
Auk hótelanna og tilheyrandi
veitingastaða keypti Nordic
Partners einnig rekstur veit-
ingastaðarins Copenhagen
Corner við Ráðhústorgið.
D’Angleterre, sem er við
Kóngsins Nýjatorg, á sér yfir
250 ára sögu. Þar hafa helstu
þjóðhöfðingjar, viðskiptajöfrar
og listamenn heims verið tíðir
gestir. Hótel Kong Frederik
er 110 herbergja hótel við
Ráðhústorgið, rétt við Tívolí og
Strikið, og Front er gegnt nýja
óperuhúsinu við höfnina.
Nordic Partners keypti hótelin
af Remmen-hjónunum Henning
og Else Marie og hófust við-
ræður um kaupin í febrúar sl.
Fram kom í viðtali Morgun-
blaðsins við Gísla Reynisson
að með þessum eignum Nordic
Partners væri heildarvirði eigna
á vegum félagsins um 65 mill-
jarðar króna.
13. september
Íbúðalánasjóður
nýtur hylli
Íbúðalánasjóður nýtur greinilega
hylli á meðal fólks þrátt fyrir
að bankarnir hafi nokkuð sótt
að honum í samkeppni – og
vilja auðvitað taka hann yfir.
Samkvæmt könnun Capacent
Gallup, sem birt var þennan
dag, sögðust 75% fasteigna-
kaupenda jákvæð gagnvart
sjóðnum og mikill meirihluti,
um 83%, vill að sjóðurinn starfi
í óbreyttri mynd. Um 8,4% vildu
hins vegar að Íbúðalánasjóður
hætti starfsemi og að viðskipta-
bankarnir sæju alveg um íbúða-
lán.
20. september
Bankarnir finna
fyrir fjármögnuninni
Morgunblaðið sagði frá því að
skuldatryggingaálag íslensku
bankanna hefði hækkað mikið
á undanförnum vikum og
hefði aldrei verið hærra. En
nokkrum dögum síðar lækk-
aði það aðeins þegar Glitnir
var með skuldabréfaútgáfu í
Bandaríkjunum.
En hvað veldur þessu háa
tryggingaálagi? Sú ástæða hefur
verið nefnd að bankarnir séu
einfaldlega enn mjög háðir fjár-
mögnun á alþjóðlegum skulda-
bréfamörkuðum.
21. september
Konur:
Á brattann að sækja
Sagt var frá því að konur væru
enn í miklum minnihluta þegar
kæmi að stjórnarsetu í stærstu
fyrirtækjum heims og þá sér-
staklega í stórfyrirtækjum í Asíu.
Karlmenn eru 89% í stjórnum
þeirra 200 fyrirtækja sem eru á
lista Fortune Global 200.
Á lista Fortune Global 200
hefur konum í stjórnum fjölgað
úr 285 í 308 á síðustu tveimur
árum. Sagt var frá því að konur
væru fátíðar sem forstjórar stór-
fyrirtækja í Japan, Kóreu, Ítalíu,
Venesúela, Rússlandi og Kína.
Alls 45 fyrirtæki af þeim 200,
sem eru á lista Fortune, eru
ekki með neinar konur í stjórn.
21. september
Þorsteinn forstjóri
Northern Travel
Greint var frá því að Þorsteinn
Örn Guðmundsson hefði verið
ráðinn forstjóri ferðarisans
Northern Travel Holding hf. sem
er í eigu Fons hf. (44%), FL
Group (34%) og Sunds (22%).
Áætlað er að félagið velti um
100 milljörðum á þessu ári.
Innan samstæðunnar eru
flugfélögin Iceland Express
og Sterling Airlines. Þorsteinn
verður stjórnarformaður þessara
félaga.
Northern Travel Holding var
stofnað í lok síðasta árs og er
fjöldi starfsmanna 2.200. Í flug-
vélaflota félaganna eru um 40
vélar og árlega flytja þær sam-
tals rúmlega 7 milljónir farþega,
að því er segir í tilkynningu.
Þorsteinn hóf störf hjá
FL Group árið 2004 en áður
starfaði hann hjá ráðgjafa-
fyrirtækinu McKinsey. Hann
er byggingaverkfræðingur að
mennt.
21. september
Er búið að segja
gjörið svo vel?
Fram kom í fréttum að Síminn
væri sagður hafa áhuga
á stærsta fjarskiptafélagi
Slóveníu, Telekom. Gengi hluta-
bréfa í félaginu hefði hækkað
nokkuð eftir að fram kom í fjöl-
miðlum í Slóveníu að fjögur fyr-
irtæki hefðu áhuga á að kaupa
tæplega helmingshlut í félag-
inu og að eitt þeirra væri Skipti
hf., móðurfélag Símans.
Hótel hótelanna í Danmörku, sjálft D´Angleterre við Kóngsins
Nýjatorg.