Frjáls verslun - 01.08.2007, Blaðsíða 83
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 7 83
Tvennan vinsælust
„Það er langoftast notast við léttvín til gjafa og þá aðallega rauðvín.
Vinsælt er að taka tvennu en þá er um að ræða rautt og hvítt vín. Það
þykir mjög veglegur pakki og er sennilega sá vinsælasti. Þótt margir
kjósi hefðbundin léttvín til gjafa þá erum við að sjálfsögðu einnig
með ýmsar gerðir kampavíns, koníaks og viskís. Það verður sífellt
vinsælla að gefa eins og hálfs lítra Mumm kampavínsflöskur – enda
fullkomin nýársgjöf. Stærri fyrirtæki velja oft vandaða viðarkassa
með mismunandi víni, oftast rauðvíni.
Við látum gjarnan útbúa gjafapakkningar fyrir 1-3 flöskur af víni
í ýmsum litum, stærðum og gerðum. Það er sígilt.“
Heill heimur út af fyrir sig
„Vínin og það sem að þeim lýtur er heill heimur út af fyrir sig
og það er alltaf gaman að bæta við sig þekkingu á þessu sviði og
bragða ný vín. Það er margt skemmtilegt í kringum þennan bransa;
við förum á margar kynningar og erlendis á námskeið þar sem við
hittum gjarnan birgja okkar, förum á vínekrurnar og kynnum okkur
framleiðsluna.“
Mekka Wine & Spirits er með margar þekktar víntegundir á
sínum snærum eins og Beefeater, Bombay, Kahlúa, Martell, Malibu,
Tommasi, Chivas Regal, Mumm, Perrier Jouët, Jameson og Bacardi,
Bacardi Breezer, Martini, Jack Daniel´s, Southern Comfort, Pilsner
Urquell og Miller auk fjölmargra þekktra víntegunda frá öllum
heimshornum t.d. Concha y Toro frá Chile.
Don Melchor frá Concha Y Toro Chile hlaut 96 stig í hinu virta
víntímariti Wine Spectator sem er hæsta einkunn sem nokkurt vín
frá Chile hefur fengið. Það kemur í fallegum viðarkössum og hefur
verið gríðarlega vinsælt sem gjöf til lykilviðskiptavina.“
Sveinn Kjartansson, sölu- og markaðsfulltrúi Mekka Wine & Spirits.
Viskí og koníak er sígild gjöf og felur í sér ákveðinn virðuleikablæ.
Vinsælt er að gefa vín í brúðkaupum, afmælum og öðrum veislum.
„Við höfum t.d. frönsk gæðavín
sem koma í viðarkössum og hafa
verið afar vinsæl gjöf.“
Nánari upplýsingar:
sveinn@mekka.is • s:856-2757
erna@mekka.is • s:856-2765
rúnar@mekka.is • s:856-2754.
Mekka er að Tunguhálsi 11
Vöruúrval og upplýsingar er að finna á
www.mekka.is