Frjáls verslun - 01.08.2007, Blaðsíða 160
160 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 7
300 STÆRSTU
S ameining Promens og Polimoon er það sem upp úr stendur á síðasta ári,“ segir Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri Promens. „Við keyptum Polimoon í lok árs 2006, en Polimoon var tæp-
lega fjórum sinnum stærra en Promens. Sameiningin hefur gengið
vel og einkennist árið því af samþættingu og samræmingu. Þess má
einnig geta að Polimoon stækkaði líka nánast
tvöfalt árið 2006 og höfum við því jafnframt
verið að vinna að samþættingu þeirra félaga sem
Polimoon keypti árið 2006. Að auki höfum við
haldið áfram að kaupa minni félög og munum
halda áfram á þeirri braut,“ segir hún.
Ragnhildur segir að helsti styrkur Promens
sé öflugt alþjóðlegt stjórnendateymi með mikla
reynslu. „Einnig erum við vel þekkt á þeim
mörkuðum þar sem við störfum fyrir tæknilega
þekkingu og áreiðanleika. Auk þess er styrkur
okkar falinn í fjölda verksmiðja, sem gerir
okkur kleift að veita viðskiptavinum okkar betri
þjónustu, en við erum með 63 verksmiðjur
sem eru fyrst og fremst dreifðar um Evrópu og
Norður-Ameríku.“
Afkoma Promens hefur verið í samræmi við væntingar, segir Ragn-
hildur ennfremur, en árið hefur einkennst af samþættingu, sem sést
að einhverju leyti í afkomutölum félagsins.
„Framtíðarsýn Promens er að vera leiðandi félag í plastframleiðslu.
Við höfum lagt áherslu á að þjóna viðskiptavinum sem þurfa sveigj-
anleika í framleiðslumagni og leggjum mikla áherslu á áreiðanleika og
að vinna náið með þeim við að finna lausnir. Í framtíðinni munum
við því í auknum mæli leggja áherslu á nýsköpun og vöruþróun,“
segir hún.
Hvað varðar breytingar í rekstrarumhverfi Promens á næstu miss-
erum kveðst Ragnhildur sjá markað fyrir plast
fara vaxandi. „Plast er ódýrt í framleiðslu og
hefur margt umfram önnur efni, svo sem mót-
unarmöguleika, einnig er það létt efni og hægt
að endurnýta það. Ég sé því ekkert annað en
aukin tækifæri fyrir Promens á núverandi og
nýjum mörkuðum.“
Ragnhildur er þeirrar skoðunar að útrás
íslenskra fyrirtækja muni halda áfram. „Tæki-
færi til vaxtar á Íslandi eru takmörkuð og sé ég
enga ástæðu til þess að ætla að vöxtur erlendis
muni minnka, þvert á móti tel ég að útrásin
muni aukast.“
Spurð að því hvaða erfiðleika hún sjái fram á
í viðskiptalífinu á næstu misserum, segir Ragn-
hildur að síðustu, að fólk á þeim vettvangi þurfi
sífellt að takast á við nýjar áskoranir. „Í raun og veru er það hluti
af okkar daglega lífi. Ég sé ekki fram á að erfiðleikar verði meiri á
næstunni. Fyrir Promens sérstaklega eru þeir ytri þættir sem skipta
mestu máli efnahagslífið í þeim löndum þar sem við störfum og verð
á hráefni,“ segir Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri Promens.
PROMENS • RAGNHILDUR GEIRSDÓTTIR
Árið hefur einkennst af samþættingu sem sést að einhverju leyti í afkomutölum.
„Plast er ódýrt
í framleiðslu og
hefur margt umfram
önnur efni, svo sem
mótunarmöguleika,
einnig er það létt efni og
hægt að endurnýta það.
Ég sé því ekkert annað
en aukin tækifæri fyrir
Promens á núverandi og
nýjum mörkuðum.“
SAMEINING PROMENS
OG POLIMOON GROUP
STENDUR UPP ÚR
TEXTI: HELGA KRISTÍN EINARSDÓTTIR • MYND: GEIR ÓLAFSSON