Frjáls verslun - 01.08.2007, Blaðsíða 36
D A G B Ó K I N
36 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 7
H
im
in
n
o
g
h
af
/
S
ÍA
-
9
0
7
1
0
9
6
Ég ætlaði bara að fá mér fiðlu
Það skiptir máli að spara á réttum stað.
*Nafnávöxtun miðast við 31. ágúst 2006 til 31. ágúst 2007 skv. sjodir.is
Peningamarkaðssjóður SPRON er fjárfestingarsjóður skv. lögum nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Rekstrarfélag sjóðsins er Rekstrarfélag SPRON. Útboðslýsingu má nálgast á heimasíðu SPRON Verðbréfa, www.spronverdbref.is.
Athygli er vakin á að fjárfestingarsjóðir eru áhættumeiri fjárfestingarkostur en verðbréfasjóðir skv. lögum. Tölur samkeppnisaðila eru unnar úr gögnum frá www.sjodir.is.
Vegmúla 2 – 108 Reykjavík – 550 1310 – verdbref@spron.is – www.spronverdbref.is
Peningamarkaðssjóður SPRON hefur gefið langhæstu ávöxtun allra peninga-
markaðssjóða á Íslandi síðustu 12 mánuði eða 15,4%*.
Enginn annar íslenskur peningamarkaðssjóður náði yfir 15% á sama tímabili*.
Peningamarkaðssjóður SPRON hefur það markmið að ná
góðri ávöxtun og áhættudreifingu. Hann hentar því vel fyrir þá sem vilja ekki
taka mikla áhættu en njóta samt stöðugrar ávöxtunar. Enginn kostnaður fylgir
því að fjárfesta í sjóðnum og inneignin er algjörlega óbundin.
Kynntu þér málið nánar á spronverdbref.is
5. október
Glæsileg vígsla
Eimskips í Kína
Hún var einstaklega tilkomumikil
og glæsileg vígsla Eimskips á
frysti- og kæligeymslum félags-
ins í hafnarborginni Qingdao
í Kína. Stór hópur Íslendinga,
aðallega starfsmenn Eimskips,
hélt til Kína og var viðstaddur
vígsluhátíðina.
Forseti Íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, var meðal
gesta hátíðarinnar og hélt
viðhafnarræðu við þetta
tækifæri. Hundruð kínverskra
starfsmanna hafnarinnar og
kæligeymslna Eimskips stilltu
sér upp og mynduðu raðir að
hermannasið við athöfnina. Þá
setti stórsveit trumbuslagara
stórskemmtilegan svip á hátíð-
ina en þeir börðu húðirnar af
slíkum krafti að hrifningu vakti.
Qingdao er við Gulahafið og er
í raun hafnarborg Peking þó að
þar á milli sé klukkutíma flug.
Qingdao er þriðja stærsta
hafnarborgin í Kína og sú tíunda
stærsta í heimi. Eimskip er
núna orðið leiðandi fyrirtæki
í heiminum á sviði frysti- og
kæligeymslna og með um 15%
markaðshlutdeild á heimsvísu.
Í kjölfar þess að kæligeymsla
Eimskips var vígð var greint frá
því að Eimskip hefði keypt 60%
hlut í kínverska gámageymslu-
fyrirtækinu Lyi Depot sem ræður
yfir fimmta stærsta gáma-
geymslusvæðinu í Qingdao.
Sjá nánar á bls. 252.
5. október
Bakkavör kaupir
breskt matvæla-
fyrirtæki
Bakkavör Group bætir enn við
sig fyrirtækjum í Bretlandi.
Tilkynnt var um að það hefði
keypt breska matvælafyrirtækið
Welcome Food Ingredients
Ltd. sem framleiðir bragðefni
og sósur til matvælafram-
leiðslu. Fyrirtækið er staðsett í
Nottinghamsskíri í Bretlandi og
eru starfsmenn 115 talsins.
6. október
Rio Tinto
vill kaupa Alcan
Tilkynnt var að hluthafar í náma-
fyrirtækinu Rio Tinto Group
hefðu lagt blessun sína yfir
kaup Rio Tinto á álfyrirtækinu
Alcan, sem meðal annars á
álverið í Straumsvík. Kauptilboð
Rio Tinto hljóðar upp 2.330
milljarða íslenskra króna. Tveir
þriðju hluthafa Alcan þurfa
einnig að samþykkja kauptil-
boðið og skýrist það fyrir 23.
október hvort þeir taka því.
Rannveig Rist, forstjóri álvers
Alcan í Straumsvík.
8. október
26 ára kona er
auðugasti Kínverjinn
Það hefur verið mikið fjallað um
þessa konu í heimsfréttunum
að undanförnu eftir að viðskipta-
tímaritið Forbes sagði frá því að
hún væri ríkasti Kínverjinn. Hún
heitir Yang Huiyan, er aðeins
26 ára og starfar sem bygginga-
verktaki. Hún er ekki aðeins
efnaðsta konan í Kína heldur
gjörvallri Asíu.
8. október
Skeljungur til sölu
Skeljungur er til sölu. Fram kom
í fréttum þennan daga að Glitnir
muni annast söluna og sölu-
tryggi Skeljung. Samkomulagið
er gert með fyrirvara um niður-
stöðu áreiðanleikakönnunar.
Eftir það verða viðræður hafnar
við áhugasama fjárfesta.
9. október
Gunnar Karl
formaður TM
Gunnar Karl Guðmundsson, for-
stjóri Skeljungs, er nýr formaður
stjórnar TM, Tryggingamiðstöðva
rinnar, eftir stórfelldar breytingar
á eignarhaldi þess, en FL Group
eignaðist 84% hlut í félaginu og
tók það af markaði. Miðað við
síðasta skráða gengi félagsins
var markaðsvirði þess liðlega
51 milljarður.
Aðrir í stjórn TM eru þeir Jón
Sigurðsson, framkvæmdastjóri
FL Group, og Þorsteinn Már
Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Hún var glæsileg vígsla Eimskips á frystigeymslunni í Kína.