Frjáls verslun - 01.08.2007, Blaðsíða 158
158 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 7
300 STÆRSTU
H in mikla sameining sem átti sér stað í ársbyrjun, er Mjólkursamsalan ehf. varð til með samruna MS, Norður-
mjólkur og Osta- og smjörsölunnar, stendur
tvímælalaust upp úr þegar litið er yfir farinn
veg,“ segir Guðbrandur Sigurðsson, forstjóri
Mjólkursamsölunnar. „Sú sameining skapar
okkur góð tækifæri til að lækka framleiðslu-
kostnað til hagsbóta fyrir almenning og
eigendur félagsins. Nýlega voru samþykktar
veigamiklar breytingar á framleiðsluskipu-
laginu sem eru til þess fallnar að einfalda og
hagræða á því sviði um land allt,“ segir hann
jafnframt.
Helsti styrkur Mjólkursamsölunnar er sá,
að félagið er framleiðendasamvinnufélag í
eigu 700 mjólkurbænda og fjölskyldna þeirra
sem standa þétt með félaginu. „Þá hefur
félagið lagt mikla áherslu á gæði, vöruþróun
og góða þjónustu við neytendur. Þetta er
helsti styrkur Mjólkursamsölunnar,“ segir
Guðbrandur.
Afkoma Mjólkursamsölunnar hefur hins
vegar ekki verið nægilega góð. „Mjólkuriðn-
aðurinn tók höndum saman við yfirvöld um
að lækka matvælaverð á síðasta ári og lýsti yfir
verðstöðvun á þessu ári. Ef horft er á mjólkur-
verð frá 1. janúar 2003 hefur það einungis
hækkað um 2,5% á sama tíma og vísitalan
hefur hækkað um 23,1% og mjólkurverð til
bænda hefur hækkað um 16%. Við gerum
ráð fyrir að þær hagræðingaraðgerðir, sem við
höfum gripið til, eigi að skila okkur jafnvægi
í rekstri félagsins á næsta ári.“
Meginstefna og framtíðarsýn Mjólkur-
samsölunnar er að þjóna íslenska mark-
aðinum eins og kostur er með fjölbreytilegt
úrval mjólkurafurða og að félagsmenn fái
sanngjarnt verð fyrir mjólkina sem þeir fram-
leiða. „Ef litið er til framtíðar gerum við ráð
fyrir meiri samkeppni hér innanlands, sem
kemur væntanlega að mestu erlendis frá, og
leggjum því áherslu á að lækka framleiðslu-
og dreifingarkostnað eins og kostur er.“
Guðbrandur sér fyrir sér tilslakanir í tollum
á landbúnaðarvörum á næstu misserum, í
takt við þær skuldbindingar sem Íslendingar
hafa á alþjóðavettvangi. „Þá höfum við verið
að leggja áherslu á útflutningsverkefni sem
MJÓLKURSAMSALAN • GUÐBRANDUR SIGURÐSSON
„Gerum ráð fyrir meiri samkeppni hér innanlands
sem kemur væntanlega að mestu erlendis frá.“
TEXTI: HELGA KRISTÍN EINARSDÓTTIR • MYND: GEIR ÓLAFSSON
„Sameining skapar
okkur góð tækifæri
til að lækka
framleiðslukostnað til
hagsbóta fyrir almenning
og eigendur félagsins.
Nýlega voru samþykktar
veigamiklar breytingar á
framleiðsluskipulaginu
sem eru til þess fallnar
að einfalda og hagræða
á því sviði um land allt.“
HAGRÆÐINGAR-
AÐGERÐIR EIGA
AÐ SKILA OKKUR
JAFNVÆGI Í REKSTRI
Á NÆSTA ÁRI