Frjáls verslun - 01.08.2007, Blaðsíða 148
KYNNING148 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 7
P
ricewaterhouseCoopers hf. (PwC) er vaxandi fyrirtæki á
sviði endurskoðunar, reikningsskila, fyrirtækja-, skatta-
og lögfræðiráðgjafar og á sér rætur hér á landi allt aftur til
ársins 1924. Fyrirtækið, sem er í eigu Íslendinga að fullu,
er hluti af PricewaterhouseCoopers int., stærsta fyrirtæki
á þessu sviði í heiminum. Framkvæmdastjóri er Ragnar Þorgeirsson
sem segir starfsemina byggða á þekkingu, hæfileikum og reynslu
starfsmanna sem áunnið hafi fyrirtækinu mikið traust:
„Við erum meðvituð um þá staðreynd að gæði þjónustunnar
hefur fært fyrirtækinu bætta samkeppnisstöðu á innlendum sem og
alþjóðlegum vettvangi og leggjum við mikið upp úr að laða til okkar
hæfileikaríkt fólk, efla það í starfi og veita því brautargengi innan
fyrirtækisins.“
PricewaterhouseCoopers hf. hefur mótast og vaxið í takt við PwC
á alþjóðavísu. Á seinustu árum hafa tvö ný svið, sem áður voru stoð-
deildir við endurskoðunina, tekið til starfa og náð örum vexti en
það eru Fyrirtækjaráðgjöf og Skatta- og lögfræðisvið. Nú hefur verið
stofnað dótturfélagið Forsjá fyrirtækjaþjónusta ehf. sem sérhæfir sig í
færslu bókhalds, launavinnslu og annarri þjónustu fyrir skilgreindan
markhóp.
Auknar kröfur í alþjóðlegu umhverfi
Alþjóðlegir staðlar, lagasetningar og reglugerðir hafa gert auknar
kröfur til endurskoðunar auk þess sem þarfir viðskiptavinanna hafa
gjörbreyst. „Með bakland í öflugu starfi PwC um allan heim, sér-
fræðiþekkingu, þekkingarmiðlun og ekki síst aðferðafræði PwC, sem
starfsfólk okkar hefur tileinkað sér, náum við að halda í við þróunina
og taka ákveðið frumkvæði á íslenskum markaði. Viðskiptavinir
PwC, útlendir sem og innlendir, geta gengið að því sem vísu að
ströng og árangursrík aðferðafræði er viðhöfð í úrvinnslu verkefn-
anna,“ segir Ragnar.
Nýjar þjónustulínur, reynsla
og aðferðafræði PwC skapar sérstöðu
Skatta- og lögfræðisvið PwC býður upp á margvíslega þjónustu,
einkum á sviði skatta- og félagaréttar. Í ljósi alþjóðavæðingar hefur
aukin áhersla verið á alþjóðlegan skattarétt, en starfsemi sviðsins
hefur aukist mikið undanfarin misseri. Hjá Fyrirtækjaráðgjöf eru
unnin verkefni er varða hina ýmsu þætti viðskiptalífsins s.s. varðandi
kaup, sölu eða sameiningu fyrirtækja, verðmat, áreiðanleikakann-
anir, innleiðingu tilskipana frá yfirvöldum, s.s. MiFID tilskipunin
Evrópusambandsins (Markets in Financial Instrument Directive
eða Tilskipun ESB um markaði með fjármálagerninga) sem hefur
útheimt mikla vinnu fyrir banka og fjármálastofnanir. Bæði MiFID
PricewaterhouseCoopers hf.
Öflugt fyrirtæki
í alþjóðlegu umhverfi
Ragnar Þorgeirsson framkvæmdastjóri segir það forréttindi að fá að
stýra fyrirtæki á borð við PwC. Löng rekstrarsaga, öflugt starfsfólk,
spennandi og traustur viðskiptamannahópur og alþjóðleg tengsl
skapa góðan grunn til að byggja stærra og hærra.
PwC leggur mikla áherslu á símenntun starfsfólks.